

Byggingarverk- eða tæknifræðingur
JTV er 20 manna vinnustaður sem sérhæfir sig í framkvæmdastjórnun, verkefnastjórnun, umsjón og eftirliti og hönnunarstjórn byggingarframkvæmda fyrir opinbera verkkaupa, einkaaðila og verktaka. JTV kemur að ýmsum framkvæmdum eins og byggingu skóla, skrifstofuhúsnæðis, baðlóna, iðnaðarhúsnæðis, hótela og íbúða o.fl.
Við leitum að verk- eða tæknifræðingi í verkefnastjórn, umsjón og eftirlit, hönnunarstjórn og ýmis tilfallandi verkefni þessu tengt. JTV starfar fyrir opinbera og einka aðila auk verktaka.
Umsókn með ferilskrá sendist í gegnum Alfreð; kynningarbréf er valfrjálst. Umsóknir eru teknar til meðferðar jafnóðum og öllum umsóknum verður svarað innan viku frá umsóknarfresti. Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Starfsstöð: Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi, og verkstaðir á vegum JTV.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Halldórsson, [email protected]
- Verkefnastjórn: stjórnun verkframkvæmda, samskipti við verkkaupa, hönnuði og birgja oþh.
- Eftirlit á verkstað: framvinda, gæði, úttektir og skráning í verkefnavef.
- Áætlanir og kostnaðareftirlit: verkáætlanir, magntökur, yfirferð reikninga, aukaverk og breytingar.
- Skjalastýring og skýrslugerð: hönnunargögn, framvinduskýrslur og mánaðarskýrslur til verkkaupa.
- Þátttaka í tilboðs- og forvalsvinnu eftir þörfum.
- Önnur tilfallandi verkefni.
- M.Sc,B.Sc. eða sambærilegt í byggingarverkfræði, byggingartæknifræði eða sambærilegu námi
- Áhugi á framkvæmdum og vilji til að vera á verkstað.
- Nákvæmni, skipulag og góð samskiptafærni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti; bílpróf.
- Reynsla af framkvæmdum, er kostur, en ekki skylda.
- Fjölbreytt verkefni fyrir opinbera, einkaaðila og verktaka, að fylgja verki frá upphafi til enda.
- Samstarf við fjölbreytta aðila og stuttar boðleiðir.
- JTV skólann, innri fræðslu okkar í verkefnastjórnun mannvirkja, kostnaðareftirliti, áhættustýringu og ÖHU.
- Nýjustu verkfæri greinarinnar, Procore, 360° og dróna, BIM og gervigreind í daglegri vinnu.
- Samkeppnishæf laun.
Íslenska
Enska










