50skills
50skills

Sölustjóri - Ísland

Þú leiðir starfsemi 50skills á íslenskum markaði. Þú berð ábyrgð á öllu söluferlinu, jafnt fyrirspurnum sem berast og markvissri sókn til nýrra viðskiptavina, frá fyrstu samskiptum til undirritunar. Þú tekur við virkum sölutækifærum og ánægðum, virkum viðskiptavinahópi, með sterkt vörumerki og gott orðspor að baki á vaxandi markaði. Íslenski markaðurinn er skrefi á undan öðrum mörkuðum: þú leiðir veginn og mótar leiðina sem aðrir fylgja.

Þetta er ábyrgðarmikið starf fyrir reynslumikinn einstakling sem tekur sjálfur virkan þátt í daglegri sölu.

Þú leiðir viðskiptavini áfram með ráðgefandi sölu, þar sem það sem þú selur er umbreyting á því hvernig þeir sinna mannauðsmálum. Þú ert í forystu innan íslenska mannauðssamfélagsins, bæði á sviði á viðburðum okkar og þar sem fagfólk kemur saman. Þú mótar líka hvernig við seljum á Íslandi. Þú verður ekki eini einstaklingurinn sem sinnir sölu hér, svo það er þitt að setja verklagið, viðmiðin við mat á sölutækifærum, agann í notkun sölukerfisins og vikulegt vinnuskipulag. Þú sinnir sölu í hverri viku og setur viðmiðin með eigin verkum.

VERKEFNIN ÞÍN

Leiða sölu og efla viðskiptasambönd á Íslandi

  • Ábyrgð á sölumarkmiðum og að loka nýjum samningum, með virk sölutækifæri í höndunum frá fyrsta degi.
  • Ábyrgð á öflun og eftirfylgni sölutækifæra: bregðast fyrst við öllum fyrirspurnum af íslenska markaðnum og byggja upp kerfisbundna sókn til nýrra viðskiptavina.
  • Þróa markvissari leiðir til að halda í og auka viðskipti við núverandi viðskiptavini, með skipulegri áherslu á ánægju, áframhaldandi viðskipti og viðbótarsölu.

Kynna lausnir okkar og byggja upp tengsl

  • Öðlast djúpa sérþekkingu á vörum og þjónustu 50skills: hvað þær gera, hvers vegna viðskiptavinir nota þær og hvaða vandamál við leysum betur en nokkur annar.
  • Sýna vöruna sjálf/ur og setja saman mögulegar lausnir fyrir viðskiptavini á staðnum.
  • Stíga á svið og koma fram fyrir hönd 50skills á viðburðum okkar og innan íslenska mannauðssamfélagsins.
  • Nota gervigreind daglega til að afla upplýsinga, undirbúa þig og vinna hraðar.
  • Greina nýjar og vænlegar leiðir til að nýta vörur 50skills, móta herferðir í kringum þær í samstarfi við markaðsteymið og hrinda þeim í framkvæmd.

Móta sölustarfið á Íslandi

  • Taka á móti og þjálfa starfsfólk sem sinnir sölu með þér, hvort sem er í fullu starfi eða hlutastarfi, og hafa áhrif á næstu ráðningar.
  • Tryggja að sölukerfið endurspegli raunverulega stöðu og söluspár séu raunhæfar.
  • Móta sölustrategíu og verklag á íslenska markaðnum og sjá til þess að þeim sé fylgt eftir.

NÁNAR UM STARFIÐ

Starfið krefst mikils frumkvæðis og sjálfstæðis: þú kemur auga á vandamálin sem skipta máli, mótar leiðina að lausn og framkvæmir án þess að bíða eftir fyrirmælum. Markaðsstarf er líka umtalsverður hluti starfsins. 50skills er mjög vel þekkt á Íslandi og flest sölutækifæri koma í gegnum fyrirspurnir, viðburði og beina sókn til viðskiptavina. Þú mótar herferðirnar og viðburðina sem viðhalda þeirri stöðu, með stuðningi alþjóðlegs markaðsteymis.

HVAÐ ÞÚ KEMUR MEÐ Í STARFIÐ

  • Þú hefur gert þetta áður: borið ábyrgð á krefjandi sölumarkmiðum og náð þeim, og hefur góða yfirsýn yfir eigin sölutölur. Reynsla af sölu hugbúnaðar eða þjónustu til mannauðs- eða rekstrarsviða er æskileg.
  • Þú beitir ráðgefandi sölu, hefur einlægan áhuga á áskorunum viðskiptavina og selur aldrei lausn sem þú hefur ekki trú á að skili þeim árangri.
  • Þú hefur áhuga á gervigreind og gott vald á tækni. Þú notar gervigreind daglega til að auka afköst og munt gera það hér líka.
  • Þér líður vel á sviði og fyrir framan myndavél og hefur ánægju af því að vera sýnilegur fulltrúi fyrirtækisins á íslenskum markaði.
  • Þú vilt byggja upp starfsemi og móta hana frá grunni.
  • Þú lyftir fólkinu í kringum þig: þau sem sinna sölu með þér verða betri fyrir vikið. Þú ert tilbúin/n að vera metin/n út frá árangri markaðarins í heild, ekki aðeins eigin samningum.
  • Þú hefur íslensku að móðurmáli og talar og skrifar ensku reiprennandi.

KOSTIR (EN EKKI NAUÐSYN)

  • Reynsla af mannauðstækni.
  • Reynsla af sjálfvirknivæðingu ferla.
  • Reynsla af því að vera fyrsti eða annar starfsmaðurinn sem er ráðinn til að sinna viðskiptauppbyggingu á tilteknum markaði.
  • Reynsla af sölu utan heimamarkaðar.

ÁRANGURSVIÐMIÐ

Eftir fyrstu þrjá mánuðina

  • Þú hefur öðlast djúpa sérþekkingu á vörum og þjónustu 50skills og þeim vandamálum sem við leysum best.
  • Þú hefur endurmetið sölutækifærin sem þú tókst við, vinnur þau markvisst áfram og hefur skapað ný tækifæri til viðbótar.
  • Þú fundar reglulega með núverandi og væntanlegum viðskiptavinum.
  • Þú hefur lokað nokkrum samningum.

Eftir fyrstu tólf mánuðina

  • Fyrirsjáanlegt flæði sölutækifæra á Íslandi, að mestu skapað með þínu eigin sölustarfi.
  • Sýnilega aukinn vöxtur á Íslandi og mælanleg nettóaukning í viðskiptum við núverandi viðskiptavinahóp.
  • Sölustrategía og verklag fyrir íslenska markaðinn hafa sannað sig í framkvæmd og eru tilbúin til að þjálfa næsta starfsmann.
  • Þú hefur skapað þér sýnilegan sess á sviði mannauðstækni á Íslandi.

Auglýsing birt14. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar