
Fast Parts ehf.
Fast Parts er varahlutaverslun með starfsstöðvar í Hafnarfirði og á Akureyri. Fyrirtækið sérhæfir sig í varahlutum, dekkjum og rekstrarvörum fyrir bíla, vinnuvélar, landbúnaðartæki og önnur tæki.
Söluráðgjafi
Fast Parts er ört vaxandi fyrirtæki sem starfar á sviði varahluta, dekkja og rekstrarvara fyrir bíla, vinnuvélar, landbúnaðartæki og aðrar vélar.
Við leitum að öflugum söluráðgjafa í verslun okkar í Hafnarfirði. Starfið felur fyrst og fremst í sér sölu, þjónustu og ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja.
Við leggjum meiri áherslu á rétt viðhorf, drifkraft og vilja til að læra en að þú kunnir allt frá fyrsta degi. Fyrir réttan einstakling eru góð tækifæri til að vaxa í starfi, taka að sér meiri ábyrgð og þróast áfram með fyrirtækinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
- Móttaka og samskipti við viðskiptavini í verslun, síma, tölvupósti og á miðlum Fast Parts
- Tilboðsgerð, eftirfylgni og uppbygging viðskiptasambanda
- Þátttaka í sölu- og markaðsstarfi
- Ýmis tilfallandi verkefni tengd daglegri starfsemi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og áhugi á sölu
- Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðhorf
- Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Gild ökuréttindi
- Reynsla af sölu og þjónustu
- Áhugi eða þekking á bílum og tækjum er kostur
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Trönuhraun 8, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Söludrifinn aðili óskast
Örugg afritun

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Sölufulltrúi – tækifæri til að verða sölustjóri
Gatula ehf.

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Verkefnastjóri á sölu- og markaðssviði – Verdi Travel
VERDI Ferðaskrifstofa

Sölumaður í skiltagerð
Fjölprent ehf

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Sölumaður á matvörusviði
Danól

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
VÍS