Flügger Litir
Flügger Litir
Flügger Litir

Sölu- og þjónusturáðgjafi - hlutastarf

Flügger leitar að sölu- og þjónusturáðgjafa til starfa í sumar- og hlutastarf í verslanir sínar á höfuðborgarsvæðinu


Hefur þú áhuga á að veita góða þjónustu og ráðgjöf, innanhúshönnun, málningu, litum og verkferlum?

Við leitum að aðila sem finnst spennandi að aðstoða viðskiptavini við málningarverkefnin sín.
Starfið felur í sér afgreiðslu, þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina, ásamt því að tryggja að verslunin sé snyrtileg og aðgengileg fyrir viðskiptavini.

Við leitum eftir ábyrgum, traustum og þjónustuliprum einstakling sem býr yfir góðri samskiptahæfni. Reynsla af sambærilegu starfi, málningarvinnu og/eða iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur.

Unnið er á vöktum, sem innihalda seinni parta á virkum dögum, annan hvern laugardag og/eða helgi. Um er að ræða hlutastarf í haust fram að næsta sumri og fullt starf næsta sumar. Hentar vel með skóla.

Hjá Flügger eru verkefnin fjölbreytt og alltaf eitthvað nýtt og spennandi að gerast hjá okkur. Við erum samhent teymi sem þrífst á því að eiga góða vinnudaga saman og tryggja viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu þegar þeir ætla að breyta til hjá sér.

Leitað er að aðila sem náð hefur 18 ára aldri og við hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um starfið, óháð kyni eða bakgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla
  • Sala
  • Þjónusta
  • Ráðgjöf
  • Áfyllingar
Auglýsing birt30. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Stórhöfði 44, 110 Reykjavík
Skeifan 4, 108 Reykjavík
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar