Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Sérfræðingur í markaðs- og vaxtaáhættu

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða öflugan aðila til að sinna eftirliti með fjárhagslegum áhættum eftirlitsskyldra aðila á fjármálamarkaði, með áherslu á markaðs-, vaxta- og fjárfestingaráhættu. Í starfinu felst meðal annars mat á fastvaxtaáhættu fjármálafyrirtækja (IRRBB), áhrifum markaðsbreytinga á eignir og skuldbindingar, notkun afleiðna og áhættuvarna og því hvernig eftirlitsskyldir aðilar stýra áhættuþáttum.

Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til að dýpka þekkingu á áhættu á banka-, lífeyris- og vátryggingamarkaði og fá víðtæka sýn á ólíka áhættuþætti á fjármálamarkaði.

Svið varúðareftirlits hefur eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Starfsemi sviðsins felst jafnframt í að viðhafa yfirsýn yfir þróun áhættu á fjármálamarkaði og viðeigandi regluverk. Deild fjárhagslegra áhættuþátta sinnir greiningu og eftirliti með helstu fjárhagslegum áhættuþáttum þessara aðila, þar á meðal útlána-, markaðs-, lausafjár og fjármögnunaráhættu. Þá tekur svið varúðareftirlits þátt í mati á kerfisáhættu, í samvinnu við fjármálastöðugleikasvið bankans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit með markaðs-, vaxta- og fjárfestingaráhættu fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga

  • Mat á fastvaxtaáhættu (IRRBB), áhrifum markaðsbreytinga á eignir og skuldbindingar, afleiðum og áhættuvörnum

  • Mat á eiginfjárþörf fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga vegna markaðs- og vaxtaáhættu

  • Mat á því hvernig eftirlitsskyldir aðilar mæla, meta og stýra fjárhagslegri áhættu

  • Þróun á aðferðafræði Seðlabankans við mat á markaðs- og vaxtaáhættu fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga

  • Þátttaka í norrænu og alþjóðlegu samstarfi

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði fjármála, hagfræði, verkfræði, stærðfræði eða skyldra greina

  • Þekking á eðli fjármálamarkaða og fjármálagerningum

  • Viðeigandi þekking og reynsla af störfum á fjármálamarkaði er kostur

  • Rík greiningarhæfni og hæfni til að vinna úr gögnum

  • Þekking á gagnagrunnum og reynsla af gagnavinnslu, t.d. með SQL, Power BI eða R

  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu

  • Frumkvæði, heiðarleiki, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi.

  • Gott vald á íslensku og ensku í mæltu og rituðu máli

Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar