

Sérfræðingur í innkaupum
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa í innkaupastýringu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á faglega þekkingu, greiningarhæfni, skipulag og þjónustulund. Starfið felur meðal annars í sér dagleg innkaup, greiningu gagna, ráðgjöf til starfsstöðva, eftirfylgni samninga og þátttöku í þróun og samræmingu innkaupaferla. Áhersla er lögð á hagkvæm, gagnsæ og samræmd innkaup í samræmi við gildandi lög, reglur og samninga.
Leitað er að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfni, á auðvelt með samskipti og hefur brennandi áhuga á innkaupum, birgðastýringu og skilvirkum ferlum.
-
Umsjón með innkaupum á rekstrar- og heilbrigðisvörum í samræmi við lög og reglur um opinber innkaup.
-
Gerð innkaupapantana og skráning í innkaupa- og fjárhagskerfi.
-
Afgreiðsla og eftirfylgni innkaupabeiðna frá starfsstöðvum HH.
-
Samskipti við innlenda og erlenda birgja.
-
Stýra innkaupum með gagnadrifinni ákvarðanatöku.
-
Birgðastýring og eftirlit með birgðastöðu.
-
Skýrslugerð, greiningar og skilgreining árangursmælinga.
-
Eftirfylgni með rammasamningum og öðrum innkaupasamningum.
-
Faglegur stuðningur og ráðgjöf til starfsstöðva.
-
Þátttaka í þróun og samræmingu innkaupaferla og umbótaverkefna.
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af opinberum innkaupum er kostur.
-
Góð greiningarhæfni, hæfni til að vinna með gögn og setja fram rökstuddar niðurstöður og tillögur.
-
Viðskiptalegur skilningur og kostnaðarvitund.
-
Góð tölvufærni, Excel kunnátta og reynsla af innkaupakerfum.
-
Framúrskarandi þjónustulund, samskipta- og skipulagshæfni og jákvætt hugafar.
-
Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta.
Heilsustyrkur
Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska















