
Samherji fiskeldi ehf.
Samherjji fiskeldi kemur að öllum stigum eldis og vinnslu, all frá hrognum til neytenda. Samherji fiskeldi ehf. rekur eina klakfiskastöð að Sigtúnum í Öxarfirði, eina klakstöð fyrir hrogn að Núpum í Ölfusi, þrjár seiðastöðvar og tvær áframeldisstöðvar fyrir bleikju, aðra á Stað við Grindavík og hina að Vatnsleysuströnd. Einnig rekur fyrirtækið eina strandeldistöð fyrir lax að Núpsmýri í Öxarfirði og tæknivædda vinnslu í Sandgerði. Allt eru þetta landeldisstöðvar sem nýta jarðvarma og notast við borholuvatn, ýmist ferskt eða ísalt, við framleiðslu á hágæða eldisfiski.
Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) – Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi leitar að reynslumiklum sérfræðingi í stýri- og sjálfvirknikerfum til að ganga til liðs við upplýsingatæknisvið fyrirtækisins og sinna þjónustu og þróun SCADA kerfa. Samherji Fiskeldi rekur landeldisstöðvar og fiskvinnslur víða um land og er að byggja nýjan Eldisgarð á Reykjanesi. Stýrikerfin eru hjarta starfseminnar. Þau vakta og stýra vatnsgæðum, súrefni, dælum, fóðrun og vinnslulínum, og rekstur þeirra hefur bein áhrif á velferð fisksins og afköst framleiðslunnar.
Framundan er mikil uppbygging og framþróun á þessu sviði. Viðkomandi mun taka virkan þátt í að byggja upp framtíðarumhverfi stýrikerfa fyrirtækisins, bæði í núverandi stöðvum og við uppbyggingu Eldisgarðs frá grunni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur, viðhald og þróun SCADA kerfa í landeldisstöðvum og fiskvinnslum fyrirtækisins, sem byggja á AVEVA System Platform
- Innleiðing nýrra kerfa og stækkanir á núverandi uppsetningu
- Þátttaka í hönnun og uppbyggingu stýrikerfa Eldisgarðs á Reykjanesi, sem byggja á Ignition SCADA
- Samstarf við og eftirfylgni með verkfræðistofum og þjónustuaðilum: rýni á hönnun, prófanir og úttektir
- Þátttaka í þróun samræmdra staðla og verklags fyrir stýrikerfi á öllum starfsstöðvum
- Samþætting SCADA kerfa við önnur upplýsingakerfi, svo sem gagnasöfnun, sögugrunna og skýrslugerð
- Öryggi og rekstraröryggi stýrikerfa (OT öryggi), í samvinnu við upplýsingatæknisvið
- Bilanagreining og úrlausn vandamála í samvinnu við starfsfólk á stöðvunum
- Skjölun á kerfum, breytingum og verkferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Að minnsta kosti 5 ára reynsla af hönnun, forritun eða rekstri SCADA kerfa
- Reynsla af AVEVA System Platform og/eða Ignition frá Inductive Automation
- Þekking á iðnstýringum (PLC) og samskiptastöðlum, svo sem OPC UA, Modbus og Ethernet/IP
- Þekking á netkerfum í iðnaðarumhverfi
- Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða verkefnum og taka ábyrgð
- Góð samskiptahæfni og reynsla af samstarfi við ráðgjafa, verktaka og notendur
Kostur
- Reynsla af stýrikerfum í fiskeldi, matvælaiðnaði, veitum eða sambærilegum vinnsluiðnaði
- Þekking á OT öryggi og stöðlum
- Þekking á SQL gagnagrunnum og sögugrunnum (historian)
- Reynsla af verkefnastjórnun
Fríðindi í starfi
- Lykilhlutverk í fyrirtæki í örum vexti
- Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu stýrikerfa nýs Eldisgarðs frá grunni
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni á mörgum starfsstöðvum
- Tækifæri til faglegrar þróunar
- Gott starfsumhverfi og samheldinn hóp
Auglýsing birt28. september 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Byggingartæknifræðingur
Verksýn

Sr. Manufacturing Engineer
Nox Medical

Innkaupastjóri/Purchasing Manager
Nicopods ehf

Product Designer / Engineer | Össur
Embla Medical | Össur

Alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálateymi
Reyktal þjónusta ehf.

Hugbúnaðarsérfræðingur
VÍS

Sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum
Íslandssjóðir

Tækni-/Verkfræðingur í framleiðslu (e. Validation Engineer)
Kerecis

Sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar
Akureyrarbær

SnerpaPower - Sérfræðingur í skýjalausnum
SnerpaPower

Yngri byggingarverkfræðingur eða byggingartæknifræðingur
JTV ehf