
Sérfræðingur í orkumiðlun
Við hjá Orkusölunni leitum að öflugum sérfræðingi í orkumiðlun sem hefur gaman af tölum og greiningum, sýnir frumkvæði og kann vel við ábyrgð. Viðkomandi fær tækifæri til að vinna að verkefnum sem hafa bein áhrif á rekstur Orkusölunnar og taka virkan þátt í áframhaldandi þróun orkumiðlunar hjá fyrirtækinu.
Orkusalan á og rekur sex vatnsaflsvirkjanir og selur raforku til heimila og fyrirtækja um allt land. Hlutverk orkumiðlunar er að kaupa og selja raforku á heildsölumarkaði til að mæta raforkuþörf viðskiptavina Orkusölunnar með hagkvæmum hætti.
Starfið felur því í sér náið samstarf og góða teymisvinnu þvert á svið Orkusölunnar, enda byggja góðar ákvarðanir í orkumiðlun á upplýsingum og þekkingu víða úr starfsemi félagsins. Orkumarkaðurinn er síbreytilegur og starfið krefst þess að horft sé bæði til dagsins í dag og fram á veginn. Við gerum orkuáætlanir, greinum þróun og tækifæri á markaði og metum ólíkar sviðsmyndir til að styðja við góðar ákvarðanir við orkuöflun.
- Framkvæmd og umsjón með orkuáætlunum
- Orkuinnkaup og viðskipti á heildsölumörkuðum með raforku
- Tilboðsgerð og greiningarvinna
- Þróun lausna sem stuðla að hagkvæmari og skilvirkari orkuöflun
- Þátttaka í verkefnum og áframhaldandi þróun orkumiðlunar hjá Orkusölunni
- Virk þátttaka í þróun og uppbyggingu vinnustaðamenningar Orkusölunnar
- Önnur tilfallandi verkefni innan eðlilegs starfssviðs
- Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði verkfræði, viðskiptafræði eða skyldra greina
- Sterk greiningarhæfni og gott talnaskyn
- Góð skipulagshæfni, samviskusemi og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna sjálfstætt, taka ábyrgð og vinna undir álagi
- Frumkvæði, jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Verðbréfaréttindi eru kostur
Enska
Íslenska










