
Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp spennandi og lífilegan vinnustað þar sem unnið er með verðmætustu vörumerki í heimi. Markvisst er unnið að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsmanna. Sjálfbærnistefnan okkar er metnaðarfull og stikar leiðina að betra samfélagi og eru starfsmenn hvattir til að taka þátt í að fylgja henni eftir, sýna frumkvæði og vinna að sífelldum úrbótum.

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Viltu gegna lykilhlutverki í að tryggja að réttar vörur séu á réttum stað á réttum tíma? Coca-Cola á Íslandi leitar að metnaðarfullum og greinandi sérfræðingi í áætlanagerð til að styrkja vörustjórnunarsvið fyrirtækisins. Starfið tengir saman sölu, markaðsmál, innkaup, framleiðslu, birgðastýringu og dreifingu og hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af gögnum, samvinnu og stöðugum umbótum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með og þróun eftirspurnar- og framboðsáætlana.
- Gerð framleiðslu- og innkaupaáætlana
- Stýring birgðastigs með áherslu á hátt þjónustustig og hagkvæma nýtingu fjármagns.
- Greining á frávikum, áhættu og tækifærum ásamt tillögum að aðgerðum.
- Eftirfylgni með lykilmælikvörðum og þátttaka í ferla- og umbótavinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis í viðskiptafræði, verkfræði, rekstrarfræði eða tengdum greinum.
- Reynsla af áætlanagerð, aðfangastjórnun eða sambærilegum verkefnum er æskileg.
- Góð greiningarhæfni og mjög góð færni í Excel og gagnavinnslu.
- Reynsla af ERP-kerfum; þekking á D365 og Power BI er kostur.
- Sterk samskiptafærni og hæfni til að vinna þvert á teymi og starfssvið.
- Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og áhugi á stöðugum umbótum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Auglýsing birt2. október 2026
Umsóknarfrestur11. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stuðlaháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skrifstofu- og gæðastjóri
Raftákn

Sérfræðingur í fjárreiðudeild
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Tækjasérfræðingur – uppsetning, þjónusta og þjálfun
DTE

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte
Deloitte

Field Service Specialist (Service, Build & Enablement)
DTE

Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankinn

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Deildarstjóri lagna og loftræsinga / Head of Discipline HVAC
COWI

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf