Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Finance Business Partner | Embla Medical

Global Finance Business Partnering teymi Embla Medical leitar að reyndum og metnaðarfullum Finance Business Partner til að styðja við Global Operations. Í þessu hlutverki vinnur þú náið með stjórnendum þvert á fyrirtækið við fjárhagsgreiningar, spár og áætlanagerðir sem styður við árangur og upplýsta ákvarðanatöku. Hér gefst þér tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í alþjóðlegu umhverfi hjá fyrirtæki með skýran og mikilvægan tilgang.

Starfið getur verið staðsett í Reykjavík, Hollandi (Eindhoven) eða í Póllandi (Szczecin).

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem Finance Business Partner gegnir þú lykilhlutverki í að efla fjárhagslegan árangur, greina tækifæri til umbóta og veita stefnumótandi innsýn sem styður rekstrarlegar og fjárhagslegar ákvarðanir innan Global Operations:

  • Greina og túlka fjárhagsleg gögn til að greina þróun, finna tækifæri til hagræðingar og styðja við rekstrarumbætur í samstarfi við stjórnendur.

  • Leiða ferli fjárhagsáætlana og spágerðar. 

  • Vinna náið með stjórnendum að því að greina áskoranir og tækifæri í rekstri og veita fjárhagslega innsýn sem styður hagkvæma og upplýsta ákvarðanatöku. 

  • Styðja við mánaðar- og árslokauppgjör, þar með talið frávikagreiningar og fjárhagsskýrslugerð. 

  • Taka virkan þátt í stöðugum umbótum innan fjármálateymisins. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í viðskipta-, hag- eða verkfræði. 

  • Haldbær reynsla af Finance Business Partnering, Business Controlling, FP&A eða sambærilegum störfum. 

  • Mjög góður skilningur á kostnaðarbókhaldi og fjárhagsgreiningu. 

  • Mjög góð Excel-kunnátta og þekking á fjárhagslegum áætlanakerfum er kostur. 

  • Hæfni til að tjá sig reiprennandi á ensku er skilyrði. 

  • Öflug greiningarhæfni og hæfni til að leysa vandamál, ásamt getu til að miðla flóknum fjárhagsupplýsingum á skýran hátt til hagsmunaaðila utan fjármálasviðs. 

  • Góð verkefnastjórnunarhæfni, getu til að forgangsraða í fjölbreyttu verkefnaumhverfi, sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og auga fyrir smáatriðum. 

Fríðindi í starfi
  •  Líkamsræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur   

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir   

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat  

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf  

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur   

  • Öflugt félagslíf 

  • Alþjóðlegt starfsumhverfi með sterkum liðsanda og sameiginlegan tilgang
  • Tækifæri til náms, vaxtar og faglegrar þróunar

  • Tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanatöku og leggja beint af mörkum til árangurs í rekstri

  • Vinnustaður sem hefur það að markmiði að bæta hreyfanleika og lífsgæði fólks

Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur17. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.HagfræðingurPathCreated with Sketch.VerkfræðingurPathCreated with Sketch.Viðskiptafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar