

Innkaupafulltrúi
Við hjá Landsvirkjun leggjum okkur fram um að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir. Við leitum að úrræðagóðum og drífandi einstaklingi til að ganga til liðs við innkaupateymið okkar. Teymið vinnur þétt saman, en starfar líka með öðru starfsfólki vítt og breitt um landið.
Sem innkaupafulltrúi sinnir þú fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, hefur aðkomu að framkvæmd innkaupa og veitir samstarfsfólki ráðgjöf um innkaupaferlið. Við leggjum því mikla áherslu á góða skipulagshæfni, þjónustulund og hæfni til að vinna sjálfstætt.
Ráðningin er tímabundin til tveggja ára og getur hentað sérstaklega vel einstaklingi sem hyggst taka sér hlé frá námi.
Við hverju má búast?
- Að kenna samstarfsfólki á hugbúnað og verklag
- Að koma að innkaupaferlum með innkaupateyminu
- Að aðstoða við upplýsingaöflun og eftirlit
- Að taka þátt í þróun kerfa, verklags og ferla innkaupa
Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu sem nýtist í starfi?
- Háskólamenntun eða stúdentspróf og starfsreynslu sem nýtist í starfi
- Tölvufærni og hæfni til að læra á ný forrit
- Framúrskarandi samskiptahæfni og vilja til að vinna í teymi
- Góða ensku- og íslenskukunnáttu
- Frumkvæði, metnað, sveigjanleika og nákvæmni
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Landsvirkjun leggur ríka áherslu á fagmennsku, frumkvæði, öryggi, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum í orkugeiranum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum starfsfólk með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem traust, jafnrétti og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og áhuga á starfinu. Fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected]
Enska
Íslenska










