Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Innkaupa- og rekstrarsérfræðingur hjá Mosfellsbæ

Mosfellsbær leitar að framsæknum, metnaðarfullum og talnaglöggum aðila með brennandi áhuga á innkaupum og hagkvæmum rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð

·        Ráðgjöf og aðstoð við svið og stofnanir vegna innkaupa- og útboðsmála. 

·        Greining, ráðgjöf og upplýsingagjöf um rekstur og fjárfestingar.

·        Umsjón með fjárhagslegum mælaborðum, eftirfylgni með mælikvörðum og tekjum.

·        Skipulagning og gerð innkaupaferla og eftirfylgni með innkaupareglum.

·        Umsjón með rammasamningum og miðlægum útboðum.

·        Greining, samræming innkaupa og þarfagreiningar.

·        Aðstoð við undirbúning fjárhagsáætlunar. 

Menntunar- og hæfniskröfur

·        Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði s.s. í viðskiptum, hagfræði eða verkfræði.

·        Meistaragráða sem nýtist í starfi er kostur.

·        Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel er skilyrði.

·        Góð þekking og reynsla af Dynamics BC (NAV) eða sambærilegum kerfum er kostur.

·        Reynsla af sambærilegum verkefnum og verkefnastjórnun er kostur.

·        Færni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun.

·        Metnaður til að ná árangri í starfi og innleiða nýjungar.

·        Frumkvæði, sjálfstæði, útsjónarsemi, skipulagshæfni og geta til að stýra verkefnum.

·        Nákvæmni í vinnubrögðum, talnagleggni og gott vald á framsetningu gagna.

·        Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg.

Auglýsing birt21. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar