Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Viltu byggja upp framtíð vindorku á Íslandi?

Umsjón með rekstri og viðhaldi Vaðölduvers

Við hjá Landsvirkjun stígum núna stór skref inn í nýjan veruleika, þar sem vindorka verður ein af lykilstoðum orkukerfis framtíðarinnar. Við leitum að öflugum einstaklingi til að byggja upp og móta viðhald á innviðum fyrsta vindorkuvers Íslands.

Þetta er spennandi starf fyrir einstakling með reynslu í viðhaldsstýringu, sem hefur drifkraft, frumkvæði og vilja til að taka ábyrgð í umhverfi sem er enn í mótun. Þú berð ábyrgð á viðhaldi og rekstri á innviðum versins, þar með talið háspennubúnaði, safnstöð og stoðbúnaði sem Landsvirkjun á og rekur. Í starfinu gefst tækifæri til að byggja upp þekkingu en einnig til að finna betri leiðir, hámarka afköst og tryggja samvinnu við þjónustuaðila vindmyllanna.

Starfsstöð er til að byrja með á framkvæmdasvæði Vaðölduvers, en framtíðarstarfsstöð verður í þjónustuhúsi á Hellu sem opnað verður haustið 2027. Starfið er því kjörið fyrir einstakling sem býr eða langar að búa á Suðurlandi.

Við hverju má búast?

  • Uppbyggingu og þróun viðhaldsáætlana fyrir innviði Vaðölduvers
  • Umsjón með viðhaldi, ástandseftirliti og viðbrögðum við bilunum
  • Samhæfingu við þjónustuaðila vindmyllanna um daglegan rekstur
  • Vinnu að auknu rekstraröryggi, endingu búnaðar og hagkvæmni í rekstri
  • Samvinnu við stjórnstöð Landsvirkjunar og ytri samstarfsaðila

Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu sem nýtist í starfi?

  • Menntun í verkfræði, tæknifræði, vélstjórn, rafvirkjun eða skyldum greinum
  • Reynslu af viðhaldsstýringu í orkugeiranum, iðnaði eða sambærilegu
  • Sjálfstæði, ábyrg og skipulögð vinnubrögð, ásamt hæfni til að taka tæknilegar ákvarðanir
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu
  • Þekkingu á háspennubúnaði, tengivirkjum eða öðrum stórum tæknikerfum er kostur

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Landsvirkjun leggur ríka áherslu á fagmennsku, frumkvæði, öryggi, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Í þessu starfi færð þú tækifæri til að hafa bein áhrif á rekstraröryggi og nýtingu vindorku til framtíðar og vinna að mikilvægum innviðum samfélagsins. Við styðjum starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem traust, jafnrétti og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og áhuga á starfinu.

Auglýsing birt13. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar