
Slippurinn Akureyri ehf
Um vinnustaðinn
Slippurinn Akureyri ehf. veitir alhliða þjónustu við sjávarútveginn og teljast helstu útgerðir á Íslandi til viðskiptavina fyrirtækisins, einnig hefur Slippnum orðið ágengt á erlendum markaði upp á síðakastið. Aðrir viðskiptavinir eru stóriðjur, virkjanir og ýmsar verksmiðjur. Slippurinn Akureyri ehf. er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði hér á landi. Það rekur upptökumannvirki og viðgerðarstöð fyrir skip og annast hvers konar málmsmíði, vélsmíði, vélaviðgerðir, rennismíði og skipasmíðar. Fyrirtækið rekur ennfremur trésmíðaverkstæði, sand/vatnsblástur, málun og verslun með eigin framleiðslu og aðrar vörur til skipa. Skipaþjónusta Slippsins Akureyri annast þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki og býður heildarlausnir í hönnun, endurnýjun og viðhaldi á skipum og búnaði þeirra. Þá færast svonefnd landverkefni stöðugt í aukana hjá fyrirtækinu. Starfsmenn Slippsins Akureyri eru um 160 talsins. Í þeim hópi eru m.a. rennismiðir, stálsmiðir, trésmiðir, tækjamenn, verkamenn og vélvirkjar. Helstu þættir í skipaþjónustu Slippsins Akureyri eru slipptökur, þvottur og málun, vélaupptökur, skrúfuviðgerðir, stálviðgerðir og ryðfrí smíði auk innréttingasmíði og hvers konar viðhalds á tréskipum. Ef sérfræðingarnir finnast ekki innan okkar vébanda köllum við til einhver af okkur frábæru samstarfsfyrirtækjum, því við leggjum mikið upp úr slagorðinu gamla og góða, sem einhver smíðaði um árið: ”Allt á einum stað!” Viðskiptavinurinn á ekki að þurfa að leita lengra en til okkar því við bjóðum heildarlausn á þeim verkefnum sem við blasa hverju sinni.

Vélfræðingur/tæknimaður í þjónustuteymi Slippsins Akureyri
Slippurinn Akureyri leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi til starfa í þjónustuteymi fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi með góða reynslu af vélbúnaði, þekking á rafmagni er kostur, sem hefur áhuga á fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining og viðgerðir á vélum og vélbúnaði
- Samskipti við birgja
- Skipulag á reglubundnu viðhaldi í samráði við framleiðanda og viðskiptavini
- Skýrslugerð vegna verkefna
Starfið getur falið í sér ferðalög, bæði innanlands og utan vegna verkefna og námskeiða.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinsbréf í vélvirkjun/vélfræði, flugvirkjun, bifvélavirkjun
- Reynsla af viðgerðum og viðhaldi á vélbúnaði
- Reynsla af vélum, hliðarskrúfum og gírum er mikill kostur
- Góð tölvukunnátta og geta til skýrslugerðar
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Auglýsing birt12. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Naustatangi 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunBilanagreiningFagmennskaFlugvélavirkjunFrumkvæðiRafvirkjunStundvísiSveinsprófTeymisvinnaVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bifvélavirki Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Verkstjóri í hellulögn – spennandi starf hjá öflugu fyrirtæki
Garðaþjónusta Reykjavíkur

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Höfuðborgarsvæði
Frumherji hf

Bifvélavirki eða maður vanur viðgerðum á stórum bifreiðum.
Teitur

Viltu díla við bíla?
Bílaumboðið Askja

Vélstjóri/keyrslumaður í fóðurframleiðslu
Fóðurblandan

Rafvirki - Vélvirki - Vélstjóri - Vélfræðingur
Púlsinn ehf.

Rafvélavirki / Rafeindarvirki / Bifvélavirki / Viðgerðamaður, framtíðarstarf
Bílaraf ehf

Bifvélavirki fyrir Max1/Vélaland-Hafnarfjörður
MAX1 | VÉLALAND

Vélamaður
Fagurverk

Sumarstarf - Vélaleiga og verkstæði
Rúko hf

Vélamaður á gröfu
Garðaþjónusta Reykjavíkur