Deloitte
Deloitte
Deloitte

Ráðgjafi í Fjármálaráðgjöf Deloitte

Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að metnaðarfullum liðsmanni sem hefur brennandi áhuga á fjármálum sem langar að vaxa sem ráðgjafi í sterku teymi. Við vinnum með viðskiptavinum að fjölbreyttum verkefnum og veitum virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þetta er frábært tækifæri fyrir nýlega útskrifað metnaðarfullt fólk sem brennur fyrir rekstri og fjármálum fyrirtækja. Þú vinnur að og styður við fjölbreytt verkefni sviðsins. Þú lærir af víðtækri þekkingu og reynslu reyndra ráðgjafa. Meðal verkefna sviðsins sem þú munt fá innsýn og reynslu í eru

  • Verðmöt og gerð fjárhagslíkana
  • Kaup og sala fyrirtækja 
  • Samrunar og yfirtökur
  • Úttektir á rekstri og fjármálum fyrirtækja 
  • Fjárhagslegar áreiðanleikakannir
  • Rekstrarráðgjöf og rekstrarendurskipulagning
  • Stefnumótun og stjórnendaráðgjöf  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða á sviði viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármála eða skyldra greina
  • Gott vald á grunnstoðum fjármála, einhver reynsla af fjármálum og greiningu þeirra kostur
  • Greiningarhæfni og færni til að setja fram efni á skýran og skilmerkilegan hátt
  • Góð þekking á Microsoft Excel og PowerPoint
  • Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki
  • Þú hefur gaman af því að takast á við og leysa áskoranir
  • Vinnur vel sjálfstætt en virkar vel í teymi
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat 
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
  • Styrki til foreldra 
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi 
  • Launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
  • Starfsfólk ræktar fjölbreytt áhugamál saman þvert á félagið t.d. með hlaupahóp, fótbolta í hádeginu og að nýta leikjaherbergi til skemmtunar og samveru
Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft PowerPointPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar