Sýn
Sýn
Sýn

Sérfræðingur á fjármálasviði

Sýn leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í öfluga deild sem er ábyrg fyrir fjárhagsgreiningum, áætlunargerð og skýrslugjöf til stjórnenda. Viðkomandi mun vinna þvert á deildir við fjárhagsgreiningar og taka þátt í spennandi breytingavegferð. Ef þú ert vel tæknilæs, með mikinn áhuga á greiningum og ert lausnamiðaður starfsmaður þá hvetjum við þig til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining á mánaðarlegum uppgjörum og skýrslugjöf til stjórnenda
  • Almenn greining fjárhagsupplýsinga
  • Aðstoð við áætlanagerð rekstrareininga
  • Upplýsingagjöf og stuðningur við stjórnendur
  • Fjárfestakynningar
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði fjármála, viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegt
  • Hæfni og brennandi áhugi á nýtingu gervigreindarlausna
  • Sterk greiningarhæfni og reynsla af gagnavinnslu og túlkun fjárhagsupplýsinga
  • Reynsla af áætlanagerð kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, drifkraftur og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar