
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Sérfræðingur í innri endurskoðun
Arion banki leitar að sérfræðingi í innri endurskoðun með áherslu á upplýsingatækni. Leitað er að skipulögðum og umbótadrifnum einstaklingi með metnað til að ná árangri í starfi og hæfni til að starfa vel í teymi. Innri endurskoðun starfar óháð öðrum deildum í skipulagi bankans og heyrir beint undir stjórn bankans. Í deildinni starfar öflugur hópur reynslumikilla sérfræðinga með það hlutverk að sjá um innri endurskoðun bankans, dótturfélaga og lífeyrissjóða í rekstri bankans.
Um er að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi fær heildarsýn og innsýn í rekstur og kerfi. Starfsfólk fær tækifæri til þess að stuðla að umbótum, þannig hafa áhrif til góðs og vinna með fjölbreyttum hópi fólks innan bankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að sjá heildarmyndina með því að greina og meta upplýsingakerfi, ferla og innra eftirlit.
- Finna veikleika áður en þeir verða vandamál og tryggja fylgni við ytri kröfur.
- Veita óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf með sérstaka áherslu á upplýsingatækni, upplýsingaöryggi og gögn.
- Vinna náið með öðrum sérfræðingum innan deildarinnar og bankans
- Nota gagnagreiningu og tækni til að gera endurskoðun snjallari og skilvirkari
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sérþekking á sviði endurskoðunar á upplýsingatækniumhverfum
- CISA, CIA eða sambærileg gráða eru kostur
- Sérþekking á sviði innri endurskoðunar er kostur
- Þekking og/eða reynsla á starfsemi fjármálafyrirtækja og/eða upplýsingatækni er kostur
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og gagnrýnin hugsun auk drifkrafts og samskiptafærni
Auglýsing birt7. maí 2026
Umsóknarfrestur21. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í reikningshaldi, uppgjöri og sjálfbærniupplýsingagjöf
Borealis Data Center ehf.

Framkvæmdastjóri
Síld og fiskur ehf - Ali

Senior Accounting Manager
Fenris Creations

Verkefnastjóri í fjármálatengdum verkefnum
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Cost Controller - CAPEX Projects
Borealis Data Center ehf.

Verkefnastjóri í þjónustu- og þróunardeild Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður

Bókari
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur í þróunar- og hugbúnaðarverkefnum
RML

Bókari
Veritas

Sérfræðingur í gæðastjórnun
Íslandsbanki

Starfsmaður á bókhaldssvið
Enor ehf

Sérfræðingur í fjármálum
Smart finance