

Sérfræðingur í gæðastjórnun
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í gæðamálum til starfa hjá Íslandsbanka.
Starfið felur í sér lykilhlutverk í mótun og þróun gæðastjórnunar bankans og hentar einstaklingum sem vilja hafa raunveruleg áhrif á stjórnarhætti, ferla og gæðamenningu í flóknu og krefjandi rekstrarumhverfi. Starfið heyrir undir svið Stafrænnar þróunar og gagnastýringar.
Viðkomandi ber ábyrgð á uppbyggingu, rekstri og áframhaldandi þróun gæðakerfis bankans í samræmi við gæðastefnu, lög og reglur sem og viðurkennda stjórnarhætti. Hlutverkið er bæði stefnumótandi og framkvæmdamiðað og felur í sér náið samstarf við stjórnendur og sérfræðinga þvert á bankann. Lögð er sérstök áhersla á einföldun, samræmingu og notendavænar lausnir sem styðja við daglegt starf, ákvarðanatöku og stöðugar umbætur.
Í starfinu gefst tækifæri til að taka virkan þátt í þróun gæðastjórnunar sem stjórntækis, styðja við fylgni og skilvirkni í starfsemi bankans og móta skýra framtíðarsýn fyrir gæðamál Íslandsbanka.
- Umsjón með mótun, rekstri og þróun gæðakerfis Íslandsbanka.
- Eignarhald á gæðakerfi bankans og samræming innra regluverks, ferla og verklags.
- Tryggja að gæðaskjöl og verklagsreglur séu skýrar, notendavænar og endurspegli raunverulega starfsemi.
- Greining og yfirsýn yfir stöðu gæðamála, frávik og þróun yfir tíma, ásamt reglubundinni upplýsingagjöf til stjórnenda.
- Samræming og samskipti við innri og ytri úttektaraðila vegna gæðamála og eftirfylgni með niðurstöðum.
- Þátttaka í þróun og einföldun ferla, með áherslu á stafrænar lausnir, sjálfvirkni og gagnadrifna nálgun.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsnám æskilegt.
- Yfirgripsmikil reynsla af gæðastjórnun, ferlastjórnun, breytingastjórnun eða skyldum málaflokkum.
- Reynsla af innleiðingu og rekstri gæðakerfa og umbótaverkefna.
- Þekking á stjórnarháttum og regluverki fjármálafyrirtækja er kostur.
- Góð greiningarhæfni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að vinna þvert á skipulag.
- Ábyrgðarmikið og áhrifaríkt starf í framsæknu og faglegu starfsumhverfi.
- Tækifæri til að móta og þróa gæðastjórnun bankans til framtíðar.
- Samstarf við öflugt fagfólk þvert á bankann.
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og góðan starfsanda.
- Tækifæri til starfsþróunar og símenntun.
Frekari upplýsingar:
Frekari upplýsingar veita Sigrún Dóra Sævinsdóttir ([email protected]) deildarstjóri Skilvirkrar starfsemi og Guðlaugur Örn Hauksson ([email protected]) ráðningarstjóri.
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.
Íslenska
Enska










