Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Ertu sérfræðingur í rafmagni?

Siglingasvið Samgöngustofu óskar eftir ráða einstakling í fjölbreytt og spennandi starf við yfirferð og mat á rafkerfum skipa. Við bjóðum upp á þjálfun, starfið hentar því jafnvel nýútskrifuðum sem og reynslumeiri einstaklingum sem vilja byggja upp þekkingu og reynslu á þessu sviði. Sérhæfing á sviði skipatækni býður upp á mikla möguleika til framtíðar á spennandi vettvangi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirfara hönnun og útfærslu rafkerfa skipa með tilliti til reglna og staðla.
  • Taka þátt í faglegum samskiptum við hönnuði, útgerðir og skoðunaraðila.
  • Aðstoða við tæknilegt mat og þróa faglega þekkingu á sviði skipatækni.
  • Aðstoð við úttektir á rafbúnaði skipa í samstarfi við aðra sérfræðinga.
  • Þróun gæðakerfis skipadeildar í samstarfi við verkefnastjóra siglingasviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, tæknifræði, rafiðnfræði, rafvirkjun, vélfræði eða sambærilegt. 
  • Áhugi á tæknimálum og vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu.
  • Jákvæðni og góð samskiptafærni.
  • Frumkvæði og góð skipulagshæfni.
  • Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar