Inter ehf
Inter ehf
Inter ehf

Tæknimaður / Viðgerðarmaður óskast til Inter ehf.

Inter ehf. leitar að drífandi og handlögnum einstakling í teymi okkar. Við þjónustum hátæknibúnað fyrir heilbrigðisgeirann og vantar liðsauka sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og spennandi verkefni, jafnt á verkstæði sem og úti hjá viðskiptavinum.

Starfssvið:

  • Alhliða þjónusta, viðhald og viðgerðir á lækningatækjum og tengdum búnaði.
  • Uppsetningar á nýjum búnaði á heilbrigðisstofnunum og starfsstöðvum um land allt.
  • Greining og viðgerðir á vélbúnaðaði
  • Samskipti við erlenda birgja vegna tæknimála.
  • Önnur tilfallandi verkefni á verkstæði og á vettvangi.

Hver erum við að leita að?

Við leitum að tæknisinnuðum einstaklingi sem er á góðum stað í lífinu og vill vaxa í starfi. Viðkomandi þarf að hafa:

  • Ríka tæknikunnátu: Þú þarft að vera „laginn í höndunum“, og geta unnið eftir kröfum framleiðenda.
  • Góða tölvukunnáttu: Kerfin okkar eru nútímaleg og þú þarft að vera lipur á tölvu við uppsetningar og bilanagreiningar.
  • Lausnarmiðað hugarfar: Þú sérð möguleika þar sem aðrir sjá vandamál.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum: Þú ert sjálfbjarga og getur fylgt verkefnum eftir frá upphafi til enda.
  • Góða enskukunnáttu: Þar sem mikið af leiðbeiningum og samskiptum við birgja er á ensku, þarf hún að vera til staðar.
  • Prúðmennsku: Þú kemur vel fyrir og átt auðvelt með að eiga góð samskipti við viðskiptavini okkar.

Hvað bjóðum við?

  • Spennandi og fjölbreytt starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.
  • Námskeið erlendis á þau tæki sem við þjónustum.
  • Tækifæri til að læra á flókinn og áhugaverðan búnað.
  • Gott og afslappað starfsumhverfi.
Auglýsing birt29. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vatnagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar