Njörður
Njörður

Framleiðslustjóri

Nýsköpunarfyrirtækið Njörður óskar eftir að ráða reyndan framleiðslustjóra með sterkan bakgrunn í tæknilegum verkefnum og með góðan skilning á framleiðsluferlum og tilheyrandi búnaði. Meginverkefni viðkomandi er að fylgja eftir þróun og prófun framleiðsluferilsins, byggja upp og sjá um rekstur verksmiðju með tilheyrandi framleiðslutækjum. Viðkomandi starfar náið með forstjóra og framkvæmdastjóra rekstrarsviðs.

Njörður var stofnað árið 2023 og byggir á nýstárlegri tækni til vinnslu magnesíum úr sjó. Um er að ræða byltingarkennda aðferð sem jafnframt er nánast kolefnishlutlaus.
Með því að virkja afl hafsins og hreina orku Íslands leysum við úr læðingi þá gríðarlegu möguleika sem magnesíum hefur upp á að bjóða en við nýtum rafvædda aðferð sem knúin er af hreinni íslenskri jarðvarmaorku. Skrifstofa er í Reykjavík en verksmiðjan verður á Grundartanga.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Undirbúa og samhæfa prufuframleiðslu og taka þátt í undirbúningi byggingarfasa framleiðslustöðvar.
  • Stjórna og samræma fjölbreytt verkefni, allt frá skipulagningu til framkvæmda með innlendum og erlendum verktökum.
  • Sjá um og eiga í samskiptum við hagaðila svo sem orkufyrirtæki, hönnuði, framleiðendur búnaðar og uppsetningarfyrirtæki.
  • Hafa umsjón og eftirlit með verktökum og uppsetningu framleiðslubúnaðar.
  • Vinna náið með meginhönnuði (AFRY) og öðrum ráðgjöfum auk þess að taka þátt í gerð samningsskilmála og útboðsgagna.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í verk- eða tæknifræði á sviði véla-, rafmagns-, efna- eða framleiðslu.
  • Reynsla af stjórnun og uppbyggingu framleiðslueininga eða orkuinnviða.
  • Reynsla af samningagerð.
  • Þekking á framleiðsluferlum og gæðastjórnunarkerfum.
  • Þekking á íslensku regluverki og góð skipulagshæfni.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

Umsóknarfrestur er til og með 5.maí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf, hvort tveggja á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt15. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grundartangi
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfaPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar