Örugg verkfræðistofa ehf
Örugg verkfræðistofa ehf
Örugg verkfræðistofa ehf

Hönnuður og ráðgjafi í bruna- og öryggiskerfum

ÖRUGG verkfræðistofa leitar að sérfræðingi í tæknilegum lausnum í bruna- og öryggiskerfum, sem býr yfir reynslu af smáspennukerfum og vill vaxa með okkur í spennandi verkefnum.

Um er að ræða fjölbreytt starf með mikla starfsþróunarmöguleika. Hefur þú brennandi áhuga á öryggismálum og vilt vera hluti af framsæknu teymi öflugustu bruna- og öryggishönnuða landsins?

Hjá Örugg færðu tækifæri til að vinna á lifandi vinnustað með faglega hvatningu og mikla möguleika til þróunar í starfi. Við bjóðum upp á krefjandi verkefni, góðan starfsanda og tækifæri til að móta starfsferil þinn í takt við vöxt fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og skilgreining á kröfum smáspennukerfa svo sem öryggiskerfa, myndavélakerfa ofl. 
  • Hönnun og ráðgjöf brunaviðvörunarkerfa og jaðarbúnaðar 
  • Öryggisráðgjöf og hönnun öryggisvarna sem hluti af öryggishönnun mannvirkja
  • Virknilýsingar bruna- og öryggisviðvörunar 
  • Skilalýsingar og móttökuprófanir 
  • Samskipti við viðskiptavini og þarfagreiningar 
Menntunar- og hæfniskröfur

Umsækjandi skal hafa:

  • Menntun á sviði rafmagnshönnunar 
  • Að lámarki 3ja ára reynslu í hönnun rafmagns- og smáspennukerfa
  • Góða þekkingu á brunakerfum og skynjaralausnum  
  • Getu til að vinna sjálfstætt og með lausnamiðaða hugsun að leiðarljósi 
  • Öfluga öryggishugsun og áhugi á öryggismálum
  • Áhugi á að bæta við sig þekkingu í margskonar bruna- og öryggiskerfum

Kostur er að umsækjandi:

  • Hafi starfsleyfi til hönnunar smáspennukerfa  
  • Hafi reynslu í vinnuvernd
Fríðindi í starfi

Starfsumhverfi

ÖRUGG er með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði fyrir starfsfólk og fjölskyldur þess. 

Hjá ÖRUGG leggjum við metnað í að skapa fjölskylduvænan vinnustað þar sem sveigjanlegur vinnutími gerir starfsfólki kleift að samræma vinnu og einkalíf á sem bestan hátt. Jákvætt andrúmsloft og sveigjanleg vinnuaðstaða eru hluti af okkar daglega starfsumhverfi. 

Auglýsing birt14. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Strandgata 1, 600 Akureyri
Húnabraut 13, 540 Blönduós
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar