

Leiðtogi á fjármálasviði Deloitte
Deloitte leitar að leiðtoga á fjármálasvið sem hefur kraft og getu til að halda utan um þau fjölmörgu krefjandi verkefni sem unnin eru á sviðinu.
Í þessu starfi getur þú látið til þín taka, haft jákvæð áhrif og unnið með teymi af frábæru fólki, við skemmtileg og fjölbreytt verkefni á sviði fjármála.
Starfið nær þvert yfir alla ferla fjármáladeildar Deloitte.
Helstu verkefni fela meðal annars í sér:
-
Mánaðarleg uppgjör
-
Greiningar á rekstri og skýrslugjöf til stjórnenda og erlendra samstarfsaðila
-
Umsjón með fjárhagsáætlanagerð og frávikagreiningum
-
Yfirumsjón með afstemmingum og gagnaskilum fyrir ársreikningagerð og undirbúning gagna til endurskoðanda
-
3-5 ára reynsla af sambærilegu starfi
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði reikningshalds er kostur
-
Brennandi áhugi á reikningshaldi og nýtingu tækninnar til skilvirkni og sjálfvirkni
-
Reynsla og góð þekking á Excel og Business Central
-
Reynsla af PowerBI er kostur
-
Hæfni í gerð og miðlun greininga
-
Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði
-
Hæfni til að hugsa í lausnum og halda mörgum boltum á lofti í einu
-
Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Íslenska
Enska










