

Verkefnastjóri á markaðssviði – Taktu þátt í vexti og þróun
Langisjór ehf. er í leit að metnaðarfullum einstaklingi í starf verkefnastjóra á markaðssviði.
Verkefnastjóri starfar á markaðssviði félagsins undir leiðsögn markaðsstjóra og vinnur í nánu samstarfi við dótturfélög samstæðunnar. Markaðssvið ber ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu á nokkrum þekktustu vörumerkjum landsins þar með talið Freyju og Ali. Starfið er fjölbreytt og gefur góða innsýn í atvinnulífið.
Langisjór ehf. er móðurfélag nokkurra fyrirtækja í framleiðslu og dreifingu á matvælum ásamt útleigu og þróun atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Langisjór veitir þjónustu á sviði fjármála, mannauðsmála, markaðsmála, upplýsingatæknimála og viðskiptaþróunar fyrir öll dótturfélögin.
Meðal fyrirtækja í samstæðu Langasjávar ehf. eru Alma íbúðafélag, Freyja, Mata, Matfugl, Salathúsið, Verkgarðar og Síld og fiskur. Hjá samstæðunni starfa um 420 manns af öllum uppruna vítt og dreift um landið.
- Verkefnastjórnun á markaðssviði þ.m.t. samfélagsmiðlar og viðburðir
- Mótun og framkvæmd markaðsherferða í samvinnu við markaðsstjóra, auglýsingastofur og aðra fagaðila
- Greining markaðsganga og mat á árangri herferða
- Yfirumsjón með efnisinnsetningu á vefi samstæðunnar
- Þátttaka í vöruþróun
- Önnur tilfallandi verkefni
- Háskólamenntun í viðskiptafræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af markaðsmálum og samfélagsmiðlum nauðsynleg
- Viðkomandi þarf að vera skipulagður, hafa frumkvæði og getu til að vinna undir álagi
- Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku
- Góð tölvukunnátta
Íslenska










