

Markaðs- og viðburðastjóri
Bako Verslunartækni (BVT) leitar að kraftmiklum og árangursdrifnum markaðs- og viðburðastjóra sem vill taka þátt í að efla sýnileika fyrirtækisins og styðja við áframhaldandi vöxt.
Um Bako Verslunartækni
Bako Verslunartækni er innflutnings-, sölu- og þjónustufyrirtæki með fjölbreyttan hóp viðskiptavina á ólíkum mörkuðum. Fyrirtækið starfar að mestu á fyrirtækjamarkaði með öfluga 12 manna söludeild og um 40 starfsmenn.
Við bjóðum allt fyrir fagfólk í eldhúsum, ástríðufulla kokka og fjölbreyttar verslunar- og vöruhúsalausnir fyrir fyrirtæki. BVT leggur áherslu á gæði, fagmennsku og lausnir sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.
📩 Umsóknir og fyrirspurnir sendist til: Alfreð.
Sverrir Viðar Hauksson
[email protected] I 7790909
Helstu verkefni
- Framleiðsla og skipulagning efnis fyrir samfélagsmiðla
- Gerð og utanumhald netauglýsinga og birtingaráætlana
- Viðhald vefsíðu fyrirtækisins með faglegu efni og textagerð
- Skipulagning og framkvæmd viðburða og kynninga
- Þátttaka í mótun og framkvæmd markaðsáætlunar
- Samstarf við söluteymi og aðra lykilaðila
Hæfniskröfur
- Reynslu af markaðsstjórnun eða sambærilegum störfum
- Gott auga fyrir efni, framsetningu og textagerð
- Reynslu af viðburðaskipulagi
- Reynsla af því að vinna með myndefni og skrifa texta til birtingar á samfélagsmiðlum
- Geta til að taka myndir og framleiða / hanna eigið efni mikill kostur
- Mjög góða skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði, metnað og árangursdrifna hugsun
- Áhuga á mat og matarmenningu
Hvað bjóðum við?
- Stórskemmtilegt og lifandi starfsumhverfi
- Endalaus tækifæri til að þróa og framkvæma nýjar hugmyndir
- Sjálfstæð vinnubrögð og traust
- Öflugt teymi og góðan starfsanda
Íslenska
Enska

