VORAR auglýsingastofa
VORAR auglýsingastofa
VORAR auglýsingastofa

Grafískur hönnuður – við leitum að skapandi og öflugum liðsfélaga!

Við óskum eftir að ráða grafískan hönnuð í hönnunarteymi okkar. Við leitum að einstaklingi með faglega menntun í grafískri hönnun, reynslu og brennandi áhuga á að skapa fallegt og áhrifaríkt efni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hönnun og uppsetning á bæði prent- og stafrænu efni, s.s. auglýsingum, kynningarefni, umbúðum, samfélagsmiðlaefni og efni fyrir vefsíður.

  • Hönnun og undirbúningur gagna til prentunar í samræmi við litakerfi (CMYK/RGB/Pantone).

  • Vinna með einfalda hreyfigrafík og videoefni.

  • Þróun hugmynda og útlitslausna í samstarfi við markaðs- og söluteymi.

Hæfniskröfur:

  • Menntun í grafískri hönnun (ekki aðeins stök námskeið).

  • Reynsla af sambærilegu starfi.

  • Góð þekking á prentferlum og frágangi prentgagna.

  • Færni í Adobe Creative Cloud, sérstaklega Illustrator, Photoshop, InDesign og After Effects.

  • Reynsla af hreyfigrafík og videovinnslu.

  • Hafi gott auga fyrir útliti, samræmi og smáatriðum.

  • Sköpunargleði, frumleiki og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi.

  • Reynsla af hönnun og uppsetningu umbúða er kostur.

Við bjóðum:

  • Áhugavert og fjölbreytt starf í skapandi umhverfi.

  • Tækifæri til að hafa áhrif á útlit og ímynd vörumerkja.

  • Góðan starfsanda og sveigjanleg vinnuskilyrði.

Menntunar- og hæfniskröfur

Grafísk hönnun á háskólastigi eða sambærilegt nám. 

Auglýsing birt6. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Adobe IllustratorPathCreated with Sketch.After EffectsPathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.IllustratorPathCreated with Sketch.InDesignPathCreated with Sketch.Photoshop
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)