Enterprise Rent-A-Car á Íslandi
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Tekjustjóri Okkar bílaleigu ehf./Enterprise

Okkar Bílaleiga ehf. leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu félagsins á spennandi tímum. Um er að ræða lykilstöðu þar sem viðkomandi ber ábyrgð á tekjustýringu og hefur bein áhrif á vöxt og stefnu félagsins.

Okkar bílaleiga ehf. er leyfishafi bílaleigunnar Enterprise Mobility. Enterprise Mobility er stærsta bílaleiga í heiminum og rekur vörumerkin Enterprise, Alamo og National.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með verðstýringu á öllum sviðum félagsins.
  • Yfirumsjón með samskiptum við ferðaskrifstofur og bókunarsíður.
  • Framkvæmd og eftirfylgni áætlana í samvinnu við framkvæmdastjórn.
  • Greining og skýrslugerð tengd tekjustraumum félagsins.
  • Greining og þróun sóknartækifæra í samstarfi við ferðaskrifstofur.
  • Gerð tilboða og samninga við lykilviðskiptavini skammtímleigu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í viðskiptafræði eða öðru fagi sem nýtist í starfi.
  • Mjög góð þekking á Excel og BI greiningartólum ásamt færni í greiningarvinnu.
  • Þekking af áætlanagerð og markmiðasetningu.
  • Reynsla af samningagerð kostur en ekki skilyrði.
  • Drifkraftur, jákvæðni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Álfabakki 4, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Power BI
Starfsgreinar
Starfsmerkingar