

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin leitar að framsæknum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf deildarstjóra þjónustudeildar á Vestursvæði. Deildarstjóri ber ábyrgð á stjórnun og rekstri deildarinnar og hefur yfirumsjón með öllum þjónustuverkefnum svæðisins sem nær frá Hvalfirði að sunnan og að Holtavörðuheiði, miðja Laxárdalsheiði og suður Innstrandaveg að Stikuhálsi.
Á þjónustudeild Vestursvæðis starfa um 45 starfsmenn á þjónustustöðvum í Búðardal, Hólmavík, Ólafsvík og Patreksfirði, auk þjónustustöðvar og vélaverkstæðis á Ísafirði, og þjónustustöðvar og vélaverkstæðis á svæðismiðstöð Vestursvæðis í Borgarnesi.
Starfsstöð deildarstjóra þjónustu á Vestursvæði er á Ísafirði en á starfsstöðinni starfa um 30 manns.
Deildarstjóri leiðir starfsemi þjónustudeildar og tryggir að þjónustuverkefnum sé sinnt í samræmi við verklag.
- Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þjónustu og rekstur samgöngukerfis svæðisins, almennur rekstur og vetrarþjónusta.
- Yfirumsjón með rekstri og starfsemi þjónustustöðva og vélaverkstæðis.
- Yfirumsjón með rekstri jarðganga.
- Umsjón með viðhaldi vegsvæða.
- Leyfisveitingar fyrir viðburði og framkvæmdir tengdar veghelgunarsvæði.
- Kostnaðareftirlit og birgðahald.
- Ábyrgð á starfsfólki og góðu starfsumhverfi.
- Öryggis- og umhverfismál á þjónustustöðvum.
- Samskipti við hagaðila á svæðinu.
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði, tæknifræði eða viðskiptafræði. Framhaldsnám er kostur.
- Reynsla af stjórnun, rekstri og áætlanagerð er kostur.
- Mjög góð hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og verkefnastýringar.
- Framúrskarandi samskiptafærni og lausnamiðuð nálgun.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Öryggisvitund.
- Mjög góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
- Mjög góð tölvukunnátta.
Íslenska
Enska










