
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Deildarstjóri þjónustudeildar á Norðursvæði
Vegagerðin leitar að framsæknum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf deildarstjóra þjónustudeildar á Norðursvæði. Deildarstjóri ber ábyrgð á stjórnun og rekstri deildarinnar og hefur yfirumsjón með þjónustustöðvum og verkstæði. Innan þjónustudeildar Norðursvæðis starfa um 40 starfsmenn á þjónustustöðvum á Hvammstanga, Sauðárkróki, Húsavík og Þórshöfn/Vopnafirði, auk þjónustustöðvar og vélaverkstæðis á svæðismiðstöð Norðursvæðis á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarstjóri leiðir starfsemi þjónustudeildar og tryggir að þjónustuverkefnum sé sinnt í samræmi við verklag.
- Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þjónustu og rekstur samgöngukerfis svæðisins, almennur rekstur og vetrarþjónusta.
- Yfirumsjón með rekstri og starfsemi þjónustustöðva og vélaverkstæðis.
- Yfirumsjón með rekstri jarðganga.
- Umsjón með viðhaldi vegsvæða.
- Leyfisveitingar fyrir viðburði og framkvæmdir tengdar veghelgunarsvæði.
- Kostnaðareftirlit og birgðahald.
- Ábyrgð á starfsfólki og góðu starfsumhverfi.
- Öryggis- og umhverfismál á þjónustustöðvum.
- Samskipti við hagaðila á svæðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði, tæknifræði eða viðskiptafræði. Framhaldsnám er kostur.
- Reynsla af stjórnun, rekstri og áætlanagerð er kostur.
- Mjög góð hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og verkefnastýringar.
- Framúrskarandi samskiptafærni og lausnamiðuð nálgun.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Öryggisvitund.
- Mjög góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
- Mjög góð tölvukunnátta.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Tæknilegur bókari
Sessor

Forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta
VÍS

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin

Full-stack forritari
Total Tempo ehf.

Business Central vöruhúsaráðgjafi
Advania

Deildarstjóri hjá Klettabæ
Klettabær

Gæðastjóri Fagkaupa
Fagkaup ehf

Vilt þú taka þátt í að þróa leiðarkerfi Keflavíkurflugvallar?
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Technical Data Standards Specialist
Air Atlanta Icelandic

Design Manager
atNorth ehf.

Verkfræðingur á sviði brúarhönnunar
Vegagerðin