Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði

Við leitum að öflugum einstaklingi í starf deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér verkefnastýringu nýframkvæmda og viðhalds á starfssvæði Vegagerðarinnar á Austursvæði.

Umsjónardeild ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með framkvæmdum á svæðinu. Í samráði við mannvirkjasvið sinnir deildin viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum ásamt efnisvinnslu á svæðinu. Svæðismiðstöð Vegagerðarinnar er á Reyðarfirði og hægt verður að nýta starfsaðstöðu þjónustustöðvarinnar í Fellabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð

Deildarstjóri leiðir starfsemi umsjónardeildar og sýnir gott fordæmi í öryggismálum. Deildarstjóri hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna, framvindu þeirra og kostnað. 

  • Yfirumsjón með nýframkvæmdum og öðrum framkvæmdum sem svæðinu eru falin, þannig að farið verði eftir útboðslýsingum, stöðlum og verklýsingum.
  • Umsjón með framkvæmdum umferðaröryggisaðgerða og viðhaldi varnargarða.
  • Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með slitlagabanka.
  • Umsjón með viðhaldi brúa og varnargarða, áætlanagerð og framkvæmd.
  • Umsjón með efnisvinnslu ásamt efniskaupum á svæðinu.
  • Mælingar tengdar framkvæmdum, s.s. útsetningar, framkvæmda- og úttektarmælingar og kostnaðareftirlit.
  • Undirbúningur og áætlanagerð þeirra verkefna sem deildinni eru falin.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af verkefnastjórnun á sviði jarðvinnuframkvæmda.
  • Þekking á landsvæði kostur.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni til að leiða teymi.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi.
  • Góð öryggisvitund.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Búðareyri 11, 730 Reyðarfjörður
Smiðjusel 1, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar