
Alva Capital ehf.
Alva Capital er fjárfestingar- og fasteignafélag sem hefur í gegnum tíðina komið að stofnun og rekstri fjölmargra spennandi fyrirtækja, meðal annars Netgíró, Heimkaupa, Inkasso og Moberg.
Megináherslur félagsins í dag eru fasteignaþróun, hótelrekstur, útleiga og rekstur fasteigna.
Við ætlum okkur stóra hluti í fasteignaþróun á næstu misserum.
www.alvacapital.is
Fjármála- og rekstrarstjóri Alva Capital
Leitað er að metnaðarfullum og árangursdrifnum aðila sem vill taka þátt í spennandi uppbyggingu Alva Capital. Megin áherslur félagsins eru þróun og rekstur fasteigna ásamt uppbygging og rekstur hótela.
Fjármála- og rekstrarstjóri ber ábyrgð á fjármálum og daglegum rekstri Alva Capital. Viðkomandi mun eiga sæti í framkvæmdastjórn félagsins og taka virkan þátt í stefnumótun og framfylgni á henni ásamt því að taka þátt í hinum ýmsu umbótaverkefnum. Fjármála- og rekstrarstjóri heyrir beint undir forstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með daglegum rekstri.
- Framkvæmd og eftirfylgni markmiðasetningar og áætlanagerðar.
- Reikningshald, mánaðarleg uppgjör, árshluta- og ársuppgjör ásamt samskiptum við endurskoðendur.
- Greiningar á sviði fjármála, viðskipta og á hagræðingartækifærum í rekstri.
- Fjármögnun og samskipti við fjármálastofnanir.
- Samningagerð við þjónustuaðila og birgja.
- Ábyrgð á innra eftirliti og lögfræðilegum málefnum.
- Yfirsýn og umsjón með fjárfestingum félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði endurskoðunar, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Árangursrík stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar.
- Mikil færni og reynsla á sviði fjármála og rekstrar.
- Reynsla af störfum á fjármálasviði hjá bygginga-, fasteignafélögum eða fyrirtækjum í skildum rekstri er kostur.
- Færni í markmiðasetningu, áætlanagerð sem og af umbótaverkefnum.
- Mjög góð þekking á Excel og BI greiningartólum ásamt færni í greiningarvinnu.
- Drifkraftur, jákvæðni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur28. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Laugavegur 182, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fjármálastjóri (CFO) – GreenFish hf.
GreenFish

Þjálfari verslana og vörusölu
Nova

Skrifstofu- og gæðastjóri
Raftákn

Fjármálastjóri
GoPro

Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði
Íslandsbanki

Rekstrarstjóri á Oche Reykjavík
Oche Reykjavik

Verkefna- og rekstrarfulltrúi
Rennsli ehf.

Deildarstjóri/-stýra eignastýringar og viðhaldsáætlana hjá Veitum
Veitur

Forstöðumaður vöruvals og innkaupa
Vínbúðin

Hótelstjóri – Reykjavík Residence Hotel
Reykjavik Residence Apartment Hotel

Framkvæmdastjóri – Vínbúðir og þjónusta
Vínbúðin

Fjármála- og rekstrarstjóri
Dropp