Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Stjórnandi búsetuþjónustu velferðarsviðs

Vilt þú leiða faglega þjónustu og rekstur í ört vaxandi sveitarfélagi?

Velferðarsvið Mosfellsbæjar leitar að drifmiklum og reyndum leiðtoga í nýtt og mikilvægt starf stjórnanda búsetuþjónustu. Um er að ræða lykilhlutverk í nýju skipulagi sviðsins þar sem áhersla er lögð á skýra stjórnun, öflugt stuðningsnet við forstöðumenn og gæði í þjónustu við fatlað fólk.

Stjórnandi búsetuþjónustu heyrir beint undir sviðsstjóra velferðarsviðs og tilheyrir stjórnendateymi velferðarsviðs. Hann er rekstrarlegur bakhjarl allra starfsstöðva í málaflokki fatlaðs fólks. Hann tryggir að búsetukjarnar og aðrar útstöðvar virki sem skyldi, styður forstöðumenn í flóknum mannauðsmálum og sér til þess að auðlindir nýtist þar sem þörfin er mest.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og gæðastjórnun: Ber ábyrgð á að þjónusta á vettvangi sé í samræmi við lög, gæðaferla og hugmyndafræði um valdeflingu og sjálfstætt líf. 

  • Stuðningur við forstöðumenn: Er næsti yfirmaður og hvetjandi leiðtogi forstöðumanna í 13 búsetu- og virkniúrræðum Mosfellsbæjar. Veitir þeim stuðning, tæki og tól til að stýra sínum einingum af öryggi. 

  • Rekstur og áætlanagerð: Hefur yfirumsjón með að rekstur og mönnun starfseininga sé innan fjárhagsramma og styður forstöðumenn við gerð launa- og rekstraráætlana. 

  • Mannauðsmál: Samræmir mönnun á milli starfsstöðva, styður við ráðningar og leiðir vinnu við að skapa jákvæða vinnustaðamenningu. 

  • Samþætting: Tryggir gott upplýsingaflæði á milli skrifstofu velferðarsviðs og stjórnenda og starfsfólks á vettvangi búsetuþjónustu. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun: Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. stjórnun, viðskiptafræði, þroskaþjálfun eða félagsráðgjöf). Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og reksturs er kostur. 

  • Stjórnun og rekstur: Reynsla af stjórnun, rekstri og starfsmannahaldi þar sem viðkomandi hefur sýnt fram á árangur í að ná rekstrarmarkmiðum og efla starfsánægju. Skilningur á þeim áskorunum sem fylgja sólarhringsþjónustu er kostur. 

  • Breytingastjórnun: Reynsla og brennandi áhugi á að leiða jákvæðar breytingar á skipulagi og vinnulagi. Hæfni til að greina tækifæri til umbóta og fylgja þeim eftir með skýrum hætti. 

  • Faglegur skilningur: Góð þekking á málaflokki fatlaðs fólks og réttindum þeirra er kostur. Skilningur á hugmyndafræði um valdeflingu og sjálfstætt líf. 

  • Rekstrarlæsi og tæknifærni: Framúrskarandi hæfni til að vinna með fjárhagsáætlanir og greina rekstrartölur. Viðkomandi þarf að vera tæknilega þenkjandi og geta nýtt upplýsingatækni og stafrænar lausnir til að bæta skilvirkni og eftirlit í rekstri. 

  • Samskipti og forysta: Mikil samskiptahæfni, tilfinningagreind og geta til að starfa sem hvetjandi bakhjarl forstöðumanna. Hæfni til að miðla málum, byggja upp traust og skapa samstöðu. 

Auglýsing birt31. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar