Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir

Umdæmisstjóri/flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli

Isavia Innanlandsflugvellir ehf leitar að framsýnum leiðtoga til að leiða flugvallarsamfélagið á Akureyrarflugvelli auk þriggja annarra áætlunarflugvalla og átta lendingarstaða sem tilheyra umdæmi 3. Akureyrarflugvöllur er vaxtarsproti í flugvallarkerfi landsins þar sem stöðug aukning hefur verið í millilandaflugi. Við leitum að reynslumiklum aðila sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi og skemmtilegt starf.

Helstu verkefni:

• Leiða teymi stjórnenda flugvallarins og styðja einstaklinga þess til vaxtar

• Taka virkan þátt í að byggja upp og stuðla að uppbyggjandi menningu sem er lykillinn að góðri öryggismenningu

• Ábyrgð á þjálfun og símenntun starfsfólks

• Ábyrgð á daglegum rekstri og fjárhagsáætlunargerð

• Eftirfylgni og innleiðing á stefnu Isavia samstæðunnar

• Ábyrgð á að innri og ytri kröfur í starfsleyfi séu innleiddar samkvæmt áætlun og aðkoma að gerð viðeigandi skjala til þess

• Ábyrgð á að gæða- og öryggisstjórnunarkerfi sé virkt innan umdæmisins, þ.m.t. umbætur vegna frávika og atvika.

• Fylgja eftir að notendur flugvallarins samræmi verklag samkvæmt öryggisstefnu og öryggisráðstöfunum flugvalla, hlíti þeim

Hæfniskröfur:

• Háskólapróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi

• Reynsla af stjórnun, rekstri, breytingastjórnun og áætlanagerð

• Þekking og reynsla af innleiðingu og eftirfylgni öryggis- og gæðastjórnunarkerfa

• Leiðtogahæfileikar, skipulögð og öguð vinnubrögð

• Framúrskarandi samskiptahæfni

• Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti

Áhugsamir einstaklingar, án tillits til kyns og uppruna, eru hvattir til að sækja um.

Starfsstöð: Akureyri

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Ósk Arnarsdóttir mannauðs- og þjálfunarstjóri, [email protected]

Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akureyrarflugvöllur, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar