

Forstöðumaður orkumiðlunar
Við hjá Landsvirkjun leitum að drífandi og framsýnum leiðtoga til að taka við starfi forstöðumanns orkumiðlunar á sviði Sölu og þjónustu. Orkumiðlun ber ábyrgð á þátttöku fyrirtækisins á raforkumarkaði og mótun vöruframboðs. Forstöðumaður leiðir þróun vöruframboðs í heildsölu, tryggir virkni viðskiptavefjar og hefur áhrif á hvernig við mætum þörfum viðskiptavina. Þetta eru spennandi verkefni á tímum breytinga og framþróunar á raforkumörkuðum. Í starfinu felst tækifæri til að leiða öflugt teymi og þróa lausnir sem skipta máli fyrir viðskiptavini og samfélagið í heild.
Helstu verkefni:
- Móta starfsemi orkumiðlunar til framtíðar
- Leiða teymið, styðja við þróun þess og þekkingu
- Greina stöðu og þróun heildsölumarkaðar
- Selja raforku með þátttöku á skipulegum raforkumarkaði
- Þróa viðskiptavef og ferla sem snúa að rekstri raforkusamninga
Menntun og reynsla:
- Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af orkumarkaði og/eða upplýsingatækni er kostur
- Leiðtogafærni, reynsla af stjórnun og uppbyggingu teyma er kostur
- Jákvæðni, samskiptafærni, drifkraftur og lausnamiðuð nálgun
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Við leggjum áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna að metnaðarfullum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi og menningu, þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og áhuga á starfinu.
Enska
Íslenska










