

Deildarstjóri leikskólamála (tímabundin staða til eins árs)
Skrifstofa Mennta- og lýðheilsusviðs óskar eftir metnaðarfullum og öflugum deildarstjóra leikskólamála til að koma að markvissri, samþættri þjónustu. Ráðning er til eins árs frá 1. ágúst 2026 – 31. Júlí 2027. Áhersla er lögð á gott samstarf milli fagfólks og þverfaglega nálgun til að tryggja farsæld barna.
Á mennta- og lýðheilsusviði ríkir faglegt umhverfi þar sem metnaður, traust og lausnamiðuð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, auk þess sem starfsfólk fær stuðning og tækifæri til þróunar, meðal annars með fræðslu og endurmenntun. Krafa er um sterk tengsl við leik- og grunnskóla, foreldra og aðra samstarfsaðila innan og utan sveitarfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Er næsti yfirmaður leikskólastjóra og hefur yfirumsjón og eftirlit með rekstri leikskólanna
- Er tengiliður á milli leikskóla og rekstraraðila með setu í þeirri stjórnarnefnd sem um málaflokkinn fjallar og framfylgir samþykktum rekstraraðila um málefni leikskóla
- Er talsmaður leikskólamála út á við f.h. Hafnarfjarðarbæjar
- Er leikskólastjórum og starfsfólki leikskóla til ráðgjafar um fagleg og rekstrarleg málefni
- Vinnur að gerð fjárhagsáætlana ásamt leikskólastjórum í samvinnu við rekstraraðila og ber ábyrgð á að hún sé haldin
- Umsýsla með gögn, fyrirspurnir og ýmis málefni fyrir sviðsstjóra, skráning gagna í skjalakerfi
- Tekur þátt í afgreiðslu mannauðsmála og stjórnsýslulegra mála með leikskólastjórum
- Hefur yfirumsjón með upplýsinga- og kynningarmálum, auglýsingum sviðsins í samráði við samskiptastjóra bæjarins og eftirlit með rannsóknum, greiningum og tölfræðiúrvinnslu sviðsins
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgir umsókn)
- Framhaldsháskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði stjórnunar, reksturs, mannauðsmála eða verkefnastjórnunar
- Þekking á leikskólastarfi
- Þekking og reynsla af stjórnun og mannauðsmálum
- Þekking og reynsla á rekstri og opinberri stjórnsýslu
- Afburða samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri Mennta- og lýðheilsusviðs, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026
Greinargóð ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini fylgi umsókn.
Krafa er gerð um hreint sakavottorð.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska























































