

Leikskólastjóri við leikskólann Kærabær, Fáskrúðsfirði
Staða leikskólastjóra við leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði er laus til umsóknar.
Kæribær er rúmlega 40 nemenda leikskóli þar sem starfrækar eru 2 deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki.
Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans: Kæribær
• Fagleg forysta, stefnumótun, þróun skólastarfs og gerð skólanámskrár.
• Skipulag skólastarfs, náms og kennslu.
• Samhæfing starfskrafta skólans.
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri.
• Samstarf við stofnanir, heimili og samfélag.
• Leyfisbréf til kennslu í leikskóla.
• Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg.
• Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg.
• Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.
Íslenska










