Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Deildarstjóri fjárlaga- og greiningardeildar

Skrifstofa Alþingis leitar að öflugum og reynslumiklum einstaklingi í starf deildarstjóra fjárlaga- og greiningardeildar á nefnda- og greiningarsviði. Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegri stjórn deildarinnar og ráðgjöf og faglegri aðstoð við fjárlaganefnd, einkum í tengslum við fjárlagafrumvarp, fjármálaáætlun og fjármálastefnu. Leitað er að stjórnanda með víðtæka þekkingu á málefnasviði nefndarinnar. Deildarstjóri þarf að búa yfir skarpri greiningarhæfni og getu til að veita skýra og trausta ráðgjöf.

Starfsfólk deildarinnar veitir fjárlaganefnd þjónustu og sinnir verkefnum fyrir aðrar fastanefndir þingsins. Í deildinni starfar einnig rannsókna- og upplýsingaþjónusta sem sinnir m.a. gagnaöflun og greiningum fyrir þingmenn, nefndir og starfsfólk. Lögð er áhersla á öfluga teymisvinnu og virkt umbótastarf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og stuðningur við starfsfólk
  • Fagleg forysta á málefnasviði deildarinnar
  • Ráðgjöf og aðstoð við fjárlaganefnd
  • Þátttaka í umbótastarfi og stefnumótunarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á meistarastigi í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum
  • Farsæl stjórnunarreynsla og geta til að leiða árangursríka teymisvinnu
  • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af gerð eða undirbúningi fjárlagafrumvarps og af framkvæmd laga um opinber fjármál
  • Afburða samskiptafærni
  • Framsækni og gróskuhugarfar
  • Framúrskarandi skipulags- og greiningarhæfni
  • Jákvæðni, lipurð og geta til að halda ró og yfirvegun þegar mikið liggur við
  • Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti og góð enskufærni
Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar