

Deildarstjóri Fimleikadeildar Aftureldingar
Fimleikadeild Aftureldingar er öflug og vaxandi deild með fjölbreytta starfsemi fyrir iðkendur á öllum aldri, allt frá yngstu iðkendum til keppnishópa. Starfið einkennist af fagmennsku, metnaði í þjálfun og öflugu félagsstarfi þar sem lögð er áhersla á jákvætt og uppbyggilegt umhverfi fyrir iðkendur.
Við leitum að kraftmiklum og skipulögðum einstaklingi með góða þekkingu á fimleikum og áhuga á uppbyggingu íþróttastarfs. Deildarstjóri mun leiða daglegt starf deildarinnar í nánu samstarfi við stjórn, þjálfarateymi, iðkendur og foreldra.
Um er að ræða framtíðarstarf og óskað er eftir því að viðkomandi muni hefja störf 1. ágúst 2026.
________________________________________
Daglegur rekstur og skipulag
• Umsjón með daglegri starfsemi fimleikadeildarinnar
• Skipulag og samhæfing æfingatöflu og hópa í samstarfi við yfirþjálfara og þjálfarateymi
• Umsjón með skráningum iðkenda og utanumhaldi starfseminnar (Abler er notað – reynsla af því er kostur)
Faglegt starf og þjálfarateymi
• Náið samstarf við yfirþjálfara og þjálfara deildarinnar
• Stuðningur við faglega þróun starfseminnar og þjálfarateymis
• Aðkoma að þjálfun hópa eftir þörfum og í samráði við yfirþjálfara
• Stuðningur við uppbyggingu æfingakerfa og starfsemi hópa
Mót og viðburðir
• Umsjón með skipulagi móta, sýninga og annarra viðburða deildarinnar
• Samstarf við Fimleikasamband Íslands og önnur félög vegna móta og verkefna
• Aðkoma að skipulagi keppnisferða og þátttöku iðkenda í mótum
Rekstur og stjórnun
• Gerð fjárhagsáætlunar
• Eftirfylgni með rekstri og fjármálum deildarinnar
• Samskipti við Mosfellsbæ, Aftureldingu, Fimleikasamband Íslands og aðra samstarfsaðila
• Stuðningur við stjórnarstarf og framkvæmd ákvarðana stjórnar
Kynning og þróun
• Umsjón með upplýsingamiðlun og kynningu á starfi deildarinnar
• Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi uppbyggingu fimleikastarfs hjá Aftureldingu
________________________________________
• Þekking á fimleikum og starfi fimleikafélaga er skilyrði
• Reynsla af þjálfun fimleika eða starfi innan fimleikahreyfingarinnar
• Reynsla af stjórnun, rekstri eða verkefnastjórnun
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
• Mjög góð skipulags- og samskiptahæfni
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun
• Hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks og halda utan um fjölbreytt verkefni samtímis
• Góð almenn tölvukunnátta
________________________________________
• Tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu fimleikastarfs hjá Aftureldingu
• Skemmtilega og jákvæða stemmningu á vinnustað ásamt sveigjanlegum vinnutíma
• Flotta skrifstofuaðstöðu í góðu teymi
• Samstarf við öflugt þjálfarateymi og virkt samfélag iðkenda og foreldra
Íslenska
Enska










