Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Gjaldkeri í reikningshaldi

Gjaldkeri er starfsmaður reikningshalds en undir deildina heyrir bókhald og innheimta bæjarins. Meðal helstu verkefna er greiðsla reikninga, sem og greiðsla launa, styrkja og framlaga. Auk þess reikningagerð (fyrir allar stofnanir), álagning gjalda (fasteignagjöld, gatnagerðargjöld og lóðaleiga) og innheimta þeirra.

Reikningshald tilheyrir skrifstofu áhættu- og fjárstýringar en þar starfa um 20 starfsmenn við bókhald, innheimtu, uppgjör, áætlunargerð, rekstrareftirlit og fleira, auk ýmis konar greiningar- og rekstrartengdra verkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um greiðslu reikninga bæjarins og undirstofnana hans, greiðslu launa til starfsfólks bæjarins og launatengdra gjalda ásamt greiðslu styrkja og framlaga
  • Sér um reikningagerð fyrir stofnanir bæjarins vegna veittrar þjónustu. Annast innheimtu þessara gjalda og heldur utan um vanskil þeirra á hverjum tíma og upplýsir svið og stofnanir um vanskil mánaðarlega
  • Semur við gjaldendur um uppgjör vanskila í samræmi við innheimtureglur og fylgir eftir samningum
  • Annast alla almenna upplýsingagjöf varðandi álagningu gjalda, reikningaforsendur og útreikning þeirra ásamt réttindum og skyldum greiðenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf
  • Nám til viðbótar stúdentsprófi sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af gjaldkerastörfum
  • Reynsla af bókhaldskerfum, t.a.m. NAV/BC
  • Mjög góð tölvuþekking, þar á meðal Teams og Office 365
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og talnagleggni
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

36 klukkustunda vinnuvika.

Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur3. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar