

Þjónustufulltrúi í þjónustuver Garðabæjar
Býrð þú yfir ríkri þjónustulund, samskiptahæfni og frumkvæði? Garðabær auglýsir eftir þjónustufulltrúa í fullt starf við bæjarskrifstofur Garðabæjar í Ráðhúsi bæjarins.
Þjónustufulltrúinn er hluti af þjónustuveri bæjarins sem er fyrsti snertiflötur við öll svið bæjarins þar sem ávallt er leitast við að leysa úr erindum íbúa og viðskiptavina. Þjónustuverið tilheyrir þjónustu- og þróunarsviði sem er stoðsvið annarra sviða. Þjónustufulltrúinn sinnir upplýsingagjöf og þjónustu við gesti, almennri símsvörun, skráningu gagna og móttöku fyrir öll svið bæjarins. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni sem sýnir frumkvæði og yfirvegun í annasömu umhverfi. Umsækjandi þarf einnig að hafa áhuga á starfsemi sveitarfélaga, vera tilbúinn að tileinka sér nýjungar og taka að sér fjölbreytt verkefni.
- Móttaka og aðstoð við íbúa og aðra viðskiptavini í Ráðhúsinu
- Upplýsingagjöf í síma, tölvupósti og öðrum miðlum
- Skráning á gögnum og upplýsingum
- Almenn skrifstofustörf
- Önnur tilfallandi verkefni
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Æskilegt að hafa reynslu af almennum skrifstofustörfum
- Góð tölvukunnátta
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi á stafrænum lausnum og þróun verkferla
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
- Enskukunnátta á stigi B1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Íslenska










