Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun

Þjónustusérfræðingur

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða einstakling til að sinna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd í úrræði á vegum stofnunarinnar.

Starfið felur m.a. í sér þjónustuviðtöl, ráðgjöf og upplýsingagjöf til umsækjenda um alþjóðlega vernd og samskipti við hagsmunaaðila. Viðkomandi myndi einnig vera tengiliður við öryggisverði og sinna reglubundnu eftirliti á húsnæði og íbúaeiningum ásamt því að vera tengiliður við húsnæðisteymi stofnunarinnar.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar; Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónustuviðtöl, ráðgjöf og upplýsingagjöf til umsækjenda um alþjóðlega vernd
  • Dagleg umsjón með húsnæði og íbúaeiningum
  • Samskipti við öryggisverði, húsnæðisteymi, þjónustuaðila og aðra hagsmunaaðila
  • Margvísleg skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
  • Reynsla af þjónustustörfum 
  • Reynsla af umsjón með húsnæði er kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð færni í spænsku og arabísku er kostur
  • Reynsla að vinna með fólki af ólíkum menningaruppruna kostur
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ArabískaArabíska
Valkvætt
Meðalhæfni
SpænskaSpænska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Hringbraut 121, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar