Samherji hf.
Samherji hf.

Umsjónarmaður fasteigna

Samherji leitar að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi í starf umsjónarmanns fasteigna. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem felur í sér daglega umsjón með fasteignum, eftirlit með húsnæði og tækjabúnaði, auk almenns viðhalds og samskipta við þjónustuaðila.

Samherji rekur öfluga útgerð, landvinnslu og fiskeldi og er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegt eftirlit með húsnæði og aðstöðu, bæði innan- og utanhúss
  • Fyrirbyggjandi viðhald og viðgerðir á húsnæði.
  • Umsjón og eftirlit með tæknikerfum fasteigna, s.s. loftræstingu, brunakerfum, lyftum og aðgangsstýringum í samstarfi við þjónustuaðila og tæknideildir Samherja.
  • Móttaka og úrvinnsla viðhalds- og bilanatilkynninga, skráning og eftirfylgni
  • Samskipti við verktaka og þjónustuaðila vegna viðhalds og framkvæmda
  • Umsjón með þjónustusamningum, innkaupum og rekstrarþáttum tengdum fasteignum
  • Umsjón með umhirðu lóða
  • Gerð og eftirfylgni viðhalds- og viðgerðaráætlana
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun eða tæknimenntun á byggingasviði, s.s. húsasmíði, rafvirkjun eða pípulagnir
  • Reynsla af umsjón eða viðhaldi fasteigna er æskileg
  • Þekking á tæknikerfum fasteigna er kostur
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni, þjónustulund og samstarfsvilji
  • Snyrtimennska, nákvæmni í starfi og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta og almenn tölvukunnátta
  • Grunnkunnátta í ensku er kostur
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Glerárgata 30, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HúsasmíðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.PípulagningarPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar