
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili eru rekin í samsteypu ásamt Eir-öryggisíbúðum. Á heimilunum er fagleg umönnun, öflug læknisþjónusta með ýmsum sérúrræðum fyrir hópa svo sem blinda og sjónskerta, einstaklinga með heilabilun á öllum stigum. Á Eir er líka endurhæfingardeild þar sem einstaklingum frá Landspítala býðst endurhæfing eftir heilsufarsáföll. Á endurhæfingardeildinni hefur náðst frábær árangur þar sem yfir 90% vistmanna útskrifast heim.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks, um 650 manns, með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !

Alhliða störf í eignaumsýslu - Sumarstarf
Óskað er eftir ráða starfsfólk í sumarstörf í alhliða eignaumsýslu hjá Eir, Skjóli og Hömrum hjúkrunarheimilum og tengdum félögum.
Starfið felur í sér að sinna ýmsum beiðnum sem viðkemur viðhaldi og daglegum rekstri stofnunarinnar. Mikið af fjölbreyttum verkefnum í lifandi byggingum Eirar, Skjóls og Hamra og tengdum félögum.
Starfið er laust strax og ráðning er út sumarið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir ýmsum verkbeiðnum sem viðkemur viðhaldi og daglegum rekstri.
- Umhirða, umsjón og almennt viðhald eigna og bílastæða.
- Ýmis garðyrkjustörf og almenn umhirða og viðhald á lóðum.
- Fjarlægir rusl og lín af deildum.
- Þrif á húsgögnum og fleira.
- Matarsendingar.
- Sendast með sýni til rannsóknar.
- Sendast eftir vörum til viðhalds og fleira.
- Sinnir öðrum sérverkefnum sem næsti yfirmaður eða stjórnandi felur honum og eðlilegt getur talist að rúmist innan verksviðs hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af viðhaldi eigna er kostur.
- Að umsækjandi sé 19 ára á árinu eða eldri.
- Bílpróf er skylda
- Líkamlegt hreysti
- Góð mannleg samskipti og rík þjónustulund
- Jákvæðni, greiningarhæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði í störfum.
- Stundvísi
Boðið er upp á
- Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni
- 36 stunda vinnuviku
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með og með 15. apríl 2026. Við hvetjum öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðmundur Kristinn Árnason, Deildarstjóri eignaumsýslu, í síma 522-5789 eða [email protected]
Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiHandlagniHreint sakavottorðJákvæðniÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiSveigjanleikiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi í sumar
Myllan

Meirapróf - Rútuakstur
Snæland Grímsson ehf.

Stykkishólmur - Bílstjóri í hlutastarf
Pósturinn

Lager
Vatnsvirkinn ehf

Lager Útideild
Vatnsvirkinn ehf

Sláttumenn / Garðyrkja / Hópstjórar - Sumarstarf
Garðlist ehf

Embassy of Japan in Iceland - Butler & Driver
Embassy of Japan in Iceland

Starf við yfirborðsmerkingar
Vegamálun GÍH

Hafnarvörður
Djúpavogshöfn

Bílstjóri í aksturs og þjónustustarfs
Linde Gas ehf

Flokkstjóri við Vinnuskóla
Sumarstörf - Kópavogsbær

VAKTMAÐUR - Sumarafleysingarstarf
Brynja leigufélag ses.