

Starf við yfirborðsmerkingar
Vegamálun GÍH óskar eftir einstakling í vinnu við yfirborðsmerkingar starfið verður unnið útfrá Reykjavík og felur í sér vinnu á þar til gerðum vélum til að sprauta yfirborðsmerkingar. Um er að ræða mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf sem felur í sér að vinna mikið úti við og því er kostur að eiga öflug sólgleraugu.
Starfið felur í sér málun og vinnu við gatnamerkingar víðs vegar um landið og felur starfið því sér möguleg ferðalög. Unnið er á sendibíl eða vörubíl og því æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af akstri slíkra bíla. Starfið felur í sér að vera með sjálfstæð vinnubrögð og kunna að temja sér nákvæm vinnubrögð.
Málun á smávélum, samskipti við viðskiptavini, akstur, smæavægilegt viðhald og önnur tilfallandi verkefni.
Meirapróf, reynsla við vinnuvélar og akstur vörubifreiða
Íslenska
Enska










