Malbikstöðin
Malbikstöðin
Malbikstöðin

Starfsmaður í framleiðslustöð

Malbikstöðin óskar eftir að ráða öflugan og lausnamiðaðan einstakling í fjölbreytt og krefjandi starf við viðhald og framleiðslu. Viðkomandi þarf að búa yfir góðu verkviti, njóta þess að sinna fjölbreyttum verkefnum og geta unnið undir álagi þegar stór verkefni eru í gangi. Fastur vinnutími er frá 07:30–15:30 virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Akstur og notkun vinnuvéla, brjóts- og mulningstækja
  • Viðhaldsverkefni, almennt viðhald og viðgerðir á malbikstöð
  • Smurþjónusta og smurning á loftkerfum
  • Áfylling á bætiefni
  • Almenn vöktun á malbikstöð og inngrip ef þörf er á
  • Viðhald á slitflötum
  • Rafsuðuvinna og almenn notkun verkfæra
  • Almenn þrif og viðhald á meðan framleiðslu stendur

Hæfniskröfur

  • Vinnuvélaréttindi
  • ADR- og meirapróf er kostur
  • Reynsla af viðhaldi og/eða viðgerðum á vélum og búnaði
  • Reynsla af akstri og notkun vinnuvéla
  • Reynsla af malbiksvinnu, jarðvinnu eða framleiðsluverkefnum
  • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Góð tæknileg færni og vilji til að læra
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Líkamsræktarstyrkur
  • Vinnufatnaður
  • Hádegismatur

Um Malbikstöðina

Malbikstöðin var stofnuð árið 2004. Félagið hefur vaxið og dafnað vel frá stofnun þess en á árinu 2020 var reist ný framleiðslustöð fyrir malbik með áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og endurvinnslu malbiks. Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 60 manns við hin ýmsu störf. Félagið rekur tvö verkstæði, rannsóknarstofu, malbikshópa, fræshópa, malbiksframleiðslu, gæða- og umhverfiseftirlit, flotastýringu og skrifstofu. Nánari upplýsingar um Malbikstöðina má sjá á heimasíðu félagsins www.malbikstodin.is

Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur26. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Flugumýri 26
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ADR-réttindiPathCreated with Sketch.Meirapróf CPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SmurþjónustaPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar