

Verkstjóri á Útflutnings- og hráefnissviði óskast
Íslenska gámafélagið leitar að öflugum og jákvæðum verkstjóra til að styrkja frábært teymi á höfuðstöðvunum okkar á Kalksléttu 1 í Reykjavík.
Viltu leiða góðan hóp, halda utan um daglegt skipulag og tryggja að hlutirnir gangi hnökralaust fyrir sig? Þá viljum við heyra frá þér!
Starfsemi Íslenska gámafélagsins byggist að mestu leyti á sorphirðu og flokkun hjá fyrirtækjum og heimilum um allt land. Ferlið fer síðan eftir tegund úrgangsins hverju sinni, hvort um sé að ræða almennt óflokkað sorp sem sent er til orkuvinnslu erlendis eða endurvinnanlegt hráefni sem flokkað er í flokkunarstöðvum Íslenska gámafélagsins og sent til endurvinnslu. Það hráefni sem Íslenska gámafélagið sér ekki um úrvinnslu á er sent til annarra fyrirtækja sem sjá um að koma því í réttan farveg.
Á Útflutnings og hráefnasviði starfa um 40 starfsmenn sem sinna flokkun og umstöflun hráefna sem koma allstaðar að af landinu. Á Kalkslétttu eru 5 skemmur sem hýsa mismunandi vinnslulínur og hráefni sem og stórt útisvæði. Hráefni eins og timbur, málmar, spilliefni, óflokkaður úrgangur, pappír og plast, gler og fleiri hráefnisflokkar eru flokkaðir og verkaðir þannig að hægt sé að koma þeim til viðeigandi móttökuaðila og stuðla að hringrásarkerfinu.
Meginhlutverk verkstjóra er stýra daglegum rekstri skemmana og veita innri sem ytri viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Einnig að stuðla að arðbærum rekstri í samvinnu við rekstrarstjóra á Hráefnasviði og annan verkstjóra á sviðinu. Hann er ábyrgur fyrir daglegum rekstri, hefur eftirlit með launakostnaði og vinnuskipulagi starfsfólks. Hann er tengiliður við alla þá sem koma að og tengjast ábyrgðarsviði hans á einn eða annan hátt; sér um áætlanir, tilboðsgerð, skýrslugerð, upplýsingaflæði og skráningar (s.s. verkbókhald og skráningu vinnutíma).
Viðkomandi sér til þess að verkefni dagsins séu kláruð og að verk haldist innan tímamarka. Hann hefur mannaforráð á sínu starfssvæði og tryggir framkvæmd stefnu fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Birgir Ásgeir, framkvæmdastjóri sviðsins, [email protected] og/eða Starfsmannasvið ÍGF, [email protected] .
Hjá Íslenska gámafélaginu höfum við jafnrétti að leiðarljósi og hvetjum öll kyn til þess að sækja um starfið.
Umsóknafrestur er til og með 20. mars 2026.
Byrjað verður að vinna að ráðningu um leið og umsóknir berast þó svo að umsóknarfrestur sé ekki liðinn.
- Verkbókhald
- Skráning vinnutíma
- Starfsmannamál
- Vinnuskipulag
- Daglegur rekstur deildar
- Umsjón svæðis og þeirra sem sækja okkar þjónustu á starfsstöð
- Góð tölvukunnátta
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Samskiptafærni
- Véla og tækjakunnátta og réttindi
- Reynsla af stjórnun skilyrði
- Heilsuefling, s.s heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
- Ýmsir styrkir, s.s íþróttastyrkur, fræðslustyrkur.
- Öflugt fræðslustarf.
- Vinalegt starfsumhverfi og tækifæri til að vinna með sterku teymi.
Íslenska
Enska










