Verkgarðar
Verkgarðar

Verkstjóri byggingaframkvæmda

Verkgarðar leita eftir metnaðarfullum og drífandi verkstjóra til starfa við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Hlutverk verkstjóra er að styðja við aðra stjórnendur við daglegan rekstur og skipulagningu verkefna. Auk þess að tryggja að framkvæmdir á verkstað standist gæðakröfur og framgangur verkefna sé í takt við áætlanir.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem snerta á flestum verkþáttum út byggingatímann.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hægri hönd verkefnastjóra við rekstur verkefna
  • Verkstjórn og eftirlit með starfsmönnum og undirverktökum á verkstað
  • Tryggja að framkvæmdir séu í samræmi við verklýsingar og teikningar
  • Greining og lausn vandamála sem koma upp á framkvæmdatíma
  • Gæðaúttektir og magntökur
  • Önnur tilfallandi verkefni sem koma upp á framkvæmdatíma
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðeigandi iðn- eða tæknimenntun
  • Reynsla af framkvæmdum og/eða verkstjórn byggingaframkvæmda
  • Framúrskarandi skipulagshæfni
  • Fagleg samskipti og metnaður til að vinna vel í teymi
Auglýsing birt7. mars 2026
Umsóknarfrestur16. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bakkabraut 9, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar