First Water
First Water
First Water

Vélaverk- eða tæknifræðingur

Við leitum að vélaverkfræðingi eða vélatæknifræðingi í framtíðarstarf á tæknisviði félagsins.

Starfsstöð er í höfuðstöðvum félagsins í Urðarhvarfi í Kópavogi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun á vélbúnaði og lausnum fyrir eldiskerfi
  • Val á búnaði og íhlutum
  • Straumfræði-greiningar af kerfum og kerfisþáttum
  • Rýni á hönnunargögnum
  • Skipulagning prófana og gangsetningar á vélbúnaði
  • Aðstoð við bilanagreiningu og tæknileg úrlausnarefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Vélaverk- eða tæknifræðingur
  • Reynsla og/eða áhugi á CFD hermun er kostur
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi og umbótahugsun

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Þórarinsson, þróunarstjóri tæknilausna, [email protected]

Umsóknafrestur er til og með 22. mars.

First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.

Auglýsing birt7. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar