
Byggingafélag námsmanna
Byggingafélag námsmanna á og leigir út til námsmanna um 650 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Félagið áformar að byggja um 300 íbúðir til viðbótar á næstu 10 árum. Ennfremur sér félagið um rekstur stúdentagarða Háskólans í Reykjavík þar sem eru yfir 250 íbúðir.
Smiður/umsjónarmaður fasteigna
Byggingafélag námsmanna auglýsir eftir smið í teymi umsjónarmanna félagsins. Starfið felst í móttöku íbúða eftir útleigu og undirbúningi þeirra fyrir næsta leigutaka, þ.m.t. þrif ef þörf er á, minni lagfæringar og endurbætur. Auk þess minniháttar viðhaldsverkefni á sameignum húsa og viðbrögð við verkbeiðnum frá leigjendum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti við leigutaka, umsjón fasteigna, þrif og viðgerðir og standsetning íbúða fyrir útleigu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Húsasmiður - góð mannleg samskipti - vilji til að vinna í teymi - lausnarmiðaður.
Fríðindi í starfi
Bíll, sími, spjaldtölva,
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSmíðar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)




