

Umsjón eigna og búnaðar – Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Við hjá Isavia leitum að öflugum og framsæknum starfsmanni í umsjón eigna og búnaðar á Keflavíkurflugvelli.
Starfsmaður við umsjón eigna og búnaðar sinnir reglulegu eftirliti með fasteignum og búnaði, fyrstu viðbrögðum við bilunum og tryggir að kerfi og flæði á flugvellinum virki sem skyldi. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf í krefjandi og spennandi umhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.
Helstu verkefni:
- Eftirlit og viðbrögð við truflunum á flæði farangurs í farangurskerfi
- Fyrstu viðbrögð vegna bilana og/eða rekstrarfrávika
- Reglubundið eftirlit með fasteignum og eignum MOI samkvæmt áætlun
- Minniháttar viðhald og viðgerðir
- Skráning í viðeigandi viðhaldskerfi vegna ábendinga eða verka
- Náinn samvinna og samskipti við aðrar deildir innan Isavia
Hæfniskröfur:
- Iðnmenntun eða önnur menntun/reynsla sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Metnaður og vandvirkni í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Skúli Pálsson, [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Enska
Íslenska










